Page 1 of 32

720 lítra Monsterbúr

Posted: 01 Oct 2007, 01:46
by Andri Pogo
Búrið er 720L Akvastabil
Stærð: 200x60x60cm
Lýsing: 4x39W T5
Hreinsibúnaður: 2x Eheim 2028 = 2100L/klst

Íbúar búrsins: uppfært 14.desember '09
1x Pangasius hypothalamus Albino
1x Clown Knife / Chitala chitala
1x Channa Pulchra
2x Polypterus Palmas palmas
4x Polypterus Palmas polli
5x Polypterus Ornatipinnis
2x Polypterus Endlicheri endlicheri
1x Polypterus Bichir lapradei
1x Polypterus Retropinnis
1x Polypterus Delhezi
2x Polypterus Senegalus
6x Ropefish / Erpetoichthys calabaricus
____________________________


Set inn fleiri myndir á morgun
Image

Posted: 01 Oct 2007, 09:24
by Ásta
:góður:

Posted: 01 Oct 2007, 11:18
by Kristín F.
húbba húllee :tilefni:

Posted: 02 Oct 2007, 11:48
by Andri Pogo
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Posted: 02 Oct 2007, 12:07
by Piranhinn
skemmtileg birta í búrinu, I like :)

Posted: 02 Oct 2007, 12:10
by Andri Pogo
já hún er ágæt, þetta er samt ekki endanlegt, það eru 4x30W T8 perur núna, 2 hvítar og 2 gular. Þeim verður skipt fljótlega í 4x39W T5 og líklega bara hvítar.

Búrið er búið að vera uppi í viku núna og það er enn gruggugt vatnið :x

Posted: 02 Oct 2007, 12:53
by Ásta
Settir þú nýja möl í?

Flottar myndir.

Posted: 02 Oct 2007, 13:44
by Andri Pogo
Það fór ný möl í búrið já þegar ég setti það upp, sandblásturssandur.

Ég veit ekki hvort ég þurfi að setja carbon svamp í dælurnar til að ná betur óhreinindunum?
Svo þarf ég eitthvað að spá í með útblásturinn úr dælunum, mér finnst ekki nóg hreyfing á yfirborðinu, örugglega lítið súrefni neðarlega í búrinu og straumurinn mætist í miðju búrinu og er kannski ekki að beina drullunni nógu vel að innsogunum. :?
Þarf að fá einhvern snjallan til að kíkja þetta :P

Posted: 02 Oct 2007, 13:49
by Hrappur
ég er með inntökin í dælurnar vinstra megin og dæla þá báðar dælurnar í búrið hægra megin .. hringrás..

Posted: 02 Oct 2007, 13:53
by Andri Pogo
já ok ég verð að prófa það

Posted: 02 Oct 2007, 14:11
by Vargur
Sammála Hrappz, ég er með bæði inntökin á sama stað og læt báða stútana sprauta í sömu átt til að hafa hringrás í búrinu.

Posted: 02 Oct 2007, 14:20
by Andri Pogo
ok, þegar ég var bara með aðra dæluna tengda hreyfðist vatnið ekkert í hinum endanum, þannig mér datt ekki annað í hug en að setja hina í hinn endann.
En það hlítur að koma góð hreyfing ef ég læt báðar sprauta í sömu átt. Verð að redda nýjum slöngum og færa þetta bara.

En ætti ég að hafa einhverjar áhyggjur af súrefni í búrinu því dælurnar bara rétt hreyfa yfirborðið og það er frekar djúpt ?

Posted: 02 Oct 2007, 14:28
by Vargur
Þú getur látið dælurnar sprauta í sömu átt þó stútarnir séu ekki endilega á sama stað, getur þú ekki bara snúið öðrum stútnum til hliðar.
Ég mundi ekki hafa stóar áhyggjur af súrefni neðst í búrini á ekki dýpra búri en þessu, þú sérð það þá fljótt á fiskunum.

Posted: 03 Oct 2007, 12:12
by Andri Pogo
pínkulítill Ornatipinnis hefur fengið að vera í friði í búrinu :-)
Image

Posted: 03 Oct 2007, 14:18
by Squinchy
Stiður lokið þitt T5 perur ? ef það er gert út fyrir T8 þá munu T5 ekki virka rétt í því

Posted: 03 Oct 2007, 22:58
by Andri Pogo
Perustæðin eru bara skrúfuð í lokið, T5 var pantað en það var sent lok með T8, svo skrúfa ég T8 stæðuna úr og skelli T5 í staðinn þegar hún kemur.
Eða ertu að meina eitthvað annað ?

Posted: 04 Oct 2007, 21:51
by Andri Pogo
jæja ég bætti aðeins í búrið í dag þar sem það er hálf tómlegt meðan hinir fiskarnir eru enn að stækka.

Image

Image

Image

Image

tveir fallegir rauðir óskarar, algjör krútt og rosalegar skræfur :P leggjast flatir á botninn þegar einhver syndir yfir þá.

Posted: 04 Oct 2007, 22:07
by Squinchy
Okei þannig að þú færð allt rafmagns unitið fyrir T5 lýsinguna s.s. skennugjafa, startara (Electronic Ballast) og perustæðin fyrir T5

Því að spennigjafinn, startarinn fyrir T8 er ekki sá sami og fyrir T5

Posted: 04 Oct 2007, 22:07
by Piranhinn
Þarna þekki ég þig :)
Þrælskemmtileg kvikindi þessir óskarar og vaxa eins og illgresi :p

Posted: 04 Oct 2007, 22:27
by Andri Pogo
Squinchy wrote:Okei þannig að þú færð allt rafmagns unitið fyrir T5 lýsinguna s.s. skennugjafa, startara (Electronic Ballast) og perustæðin fyrir T5

Því að spennigjafinn, startarinn fyrir T8 er ekki sá sami og fyrir T5
já skipt um allt heila klabbið :P
Piranhinn wrote:Þarna þekki ég þig :)
Þrælskemmtileg kvikindi þessir óskarar og vaxa eins og illgresi :p
já ég hef aldrei verið hrifinn af síklíðum en óskarar finnst mér fallegir, sérstaklega svona litlir. Það var samt aldrei á plani að fá mér þannig.

Ég hef bara áhyggjur af því að óskararnir verða of æstir og frekir fyrir búrið seinna meir, það verður bara að koma í ljós.
Vantaði meiri hreyfingu í búrið því flestir fiskarnir mínir hanga á botninum.

Posted: 04 Oct 2007, 22:31
by Squinchy
Flott er :)

'hamingju með óskarana, þetta eru algjörir snillingar, er sjálfur með 2 sem eru 20+cm í 600L, 1 10cm og 2 6cm í 170 meðan ég er að fita þá fyrir 600L búrið :P

Posted: 05 Oct 2007, 23:30
by Andri Pogo
Mér brá heldur betur áðan, var að láta renna vatn úr búrinu vegna vatnsskipta en svo hættir vatnið að renna...
Þegar ég skrúfa sundur
Image
þá liggur Ornatipinnis hálfur inni í stykkinu :shock:
ég dró hann út en hélt að hann væri dauður.
Það tók hann nokkrar mín að byrja að hreyfa sig aftur en svo sleppti ég honum í búrið.
Hann átti erfitt með að synda og kafa í góða stund en er orðinn ágætur núna.

Hausinn á honum er frekar illa farinn eftir slöngustykkið og eitthvað af 'uggunum' eru brotnir.
Ég vona bara það besta. :)

Posted: 05 Oct 2007, 23:58
by Gudjon
Ef þér lýst ekkert á þetta þá er til lyf sem hjálpar til við að endurnýja/bæta slímhúðina
við skulum vona að hann nái sér

Posted: 10 Oct 2007, 14:06
by Andri Pogo
Bætti við einu kríli í gær.
Rainbow Snakehead / Channa bleheri, svokölluð dverg-channa en hún verður aðeins 20cm, þessi er tæplega 10cm.
Eiga að vera góðar með stærri fiskum og fer vonandi ekki að bíta frá sér.

Image


svo mældi ég walking catfish hlussuna og hún er 27cm án þreifaranna

Posted: 14 Oct 2007, 00:00
by Andri Pogo
Ég eyddi því smá tíma í dag í búrið, tók allt upp úr, skipti 5-6 litlum rótum út fyrir 2 stórar og fækkaði plöntunum. (Samt enn óánægður með uppsetninguna, eins og alltaf)
Svo er búrið búið að vera í gangi í næstum 3 vikur og enn gruggugt :!:
Lét kol í báðar dælurnar fyrir nokkrum dögum en það hefur ekki breytt neinu.
Hef verið að gera 20-30% vatnsskipti nokkrum sinnum til að reyna að losna við þetta en ekkert gerst.
Ég er búinn að gera allt nema færa dælustútana, þannig að inntökin eru öðru megin en blásturinn hinu megin. Mesta vesenið að gera það þannig ég enda á því :P
Núna er ég að fylla í eftir að hafa tekið um 70% úr, vonandi lagar það þetta eitthvað.

En hérna er mynd sem sýnir hvað það er gruggugt:
Image

Posted: 14 Oct 2007, 00:03
by Vargur
Ertu ekki með filt (hvítu bómullina) í dælunum ?

Posted: 14 Oct 2007, 00:07
by Andri Pogo
júbb

Posted: 15 Oct 2007, 10:09
by Andri Pogo
reyndi að taka beina heildarmynd af búrinu en þar sem það er veggur beint á móti búrinu er það frekar erfitt, get ekki horft í myndavélina til að fókusa, verð bara að halda myndavélinni uppvið vegginn og vona það besta :P

En þetta er eftir breytingar, ætla að bæta við stærri rótum og meiri gróðri.
Ég vildi hafa búrið frekar lítið skreytt og með miklu sundplássi fyrir fiskana en meðan þeir eru svona litlir er það bara tómlegt.

Þegar þessi mynd var tekin í gær var Walking Catfish búinn að róta upp 3 plöntum, í dag eru þær orðnar 5... ég er að íhuga að losa mig við hann.
Ég verð bara að velja, WC eða gróður :?

Image

Posted: 15 Oct 2007, 10:41
by Squinchy
Ég setti mínar plöntur ofan í blóma pott, þessa sem margir eru að brjóta og setja í búrið til að láta hryggna á, gróf hann hálfan niður í sandinn og setti síðan sæmilega stóra steina í kringum plöntuna í pottinum, þannig er ekki hægt að róta plöntunum upp :)

Posted: 17 Oct 2007, 23:44
by Andri Pogo
Nálafiskurinn drapst hjá mér í gær, ég held að hann hafi svelt sig til dauða, hann hafði ekki étið í svona viku. Ég var svosem ekki með neinar áhyggjur því hann hefur alveg sleppt því að éta nokkra daga í einu.
Ég mældi hann 20cm og skellti honum svo í frystirinn, tek myndir af honum seinna. Alveg magnað hvað tennurnar í honum eru beittar, þær renna inní húðina :P

Það var hundfúlt að missa hann en maður verður bara að horfa á jákvæðu hliðina og ég er kominn með hugmynd af annari tegund sem kemur í staðinn :wink: