Piranha búr - Myndir

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Piranha búr - Myndir

Post by Gilmore »

Hérna er lýsing og myndir af 400l Piranha búri.

Búrið var upphaflega sett upp í mars og voru þá Frontosur í því, en þær hafa nú flutt yfir í annað búr og Piranha komu í þetta búr í september með tilheyrandi breytingum.

Búr: 400l Juwel (Innri dæla fjarlægð).
Dælur: Eheim Professionel II 2028, Coralife Luftpump loftdæla.
Ljós: 1x36w flúrpera.

Fiskar: 14 stk Red Belly Piranha (verða 6 - 8 stk þegar þeir eru fullvaxnir). 01.07: Nú eru eftir 10 stk.
2 stk Raphael catfiskar.
1 stk Ancistrus.
2 stk Ancistrus Gold (dýrt spaug). ;)

Myndirnar eru frekar dökkar vegna þess að lýsingin er frekar dauf í búrinu.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image
Last edited by Gilmore on 27 Jan 2007, 22:17, edited 1 time in total.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

pirana/hauskúpu þema er heillandi . . ;)
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Gaman að sjá hvað aðrir að gera með saman búrið !!
Spenntur að sjá seitna myndir þegar Pyranja er buin að stækja :D
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Post by ragz »

Já flott búr og það verður ennþá flottara þegar fiskarnir eru komnir í góða stærð.. hvað ertu að gefa þeim að éta?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

nebbi wrote:pirana/hauskúpu þema er heillandi . . ;)

...hauskúpuþemað, já ! :?

Image
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Post by ragz »

Vá hvað þetta er raunveruleg hauskaupa? er hún í búri hjá þér? ... er hún kanski alvöru??? :twisted: 8)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Kanski....?
Ég skal sýna þér hana næst þegar þú kemur í heimsókn.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég er að gefa þeim hráar rækjur í skel, soðnar rækjur, þorsk, smokkfisk, Sera Granu Meat (síkliðumatur) og einstaka sinnum blóðorma, lifur og nautahakk. Þeir stækka þvílíkt hratt á þessu, en ég gef þeim ca. 4 sinnum á dag núna, en það þarf ekki að gefa þeim alveg eins oft þegar þeir stækka.

Þeir voru agnar smáir þegar ég fékk þá fyrir 4 vikum síðan, svona eins og tíeyringur. Þeir hafa stækkað þvílíkt síðan, eru komnir í góða tíkallastærð og eru farnir að roðna aðeins á kviðnum.

Ég er með búrið þar sem er talsverður umgangur en þá eiga þeir að verða vanir umganginum og verða ekki eins stressaðir og fælnir eins og þeir eru oftast. Þeir eru venjulega frekar rólegir hjá mér en ef það eru margir í heimsókn eða snöggar hreyfingar við búrið þá skjótast þeir í felur. Annars er heimilið yfirleitt frekar rólegt þannig að ég held að þeir verði orðnir nokkuð spakir eftir nokkra mánuði. Það er lykilatriði að sýna þessum fiskum þolinmæði.

Það væri mjög gaman að heyra reynslusögur hjá öðrum sem eru með eða hafa verið með Piranha einhverntíman.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég ætla að setja inn stutt videobrot af búrinu fljótlega!!!
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég er búinn að fækka fiskunum niður í 10 stk, því að eins og sést hafa þeir stækkað hressilega síðan í haust.

Hérna eru glænýjar myndir:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

ferlega flottur rauði liturinn í þeim

Ertu með einhverja aðra fiska með þeim?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fallegir og greinilega aldir á toppfóðri, litirnir er svakalega sterkir í þeim og fiskarnir frískir að sjá eins og reyndar allir fiskarnir hjá þér.
...En ég er ekki alveg að fíla þennan gerfigróður hjá þér.
Eru botnfiskarnir enn í búrinu ? Er Raphaelinn hentugur í piranha búr ?
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Þau er rosalegt flottir , alveg svakalega sjá hvað þau voru stækað
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

stækka hratt, dreng.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég nenni ekki að vesenast með alvöru gróður. Mér finnst þessar gerviplöntur allt í lagi til að gefa smá contrast.

Botnfiskarnir eru ennþá í búrinu, gæti samt verið að það sé búið að éta annan albino ancistusinn, hef allavega ekki séð hann lengi. En Rafael er eini fiskurinn sem er talinn eiga séns á að lifa lengi með Piranha, sökum þess að hann er svo felugjarnir. Samt sem áður sé ég mína oft koma út á matartíma og synda innan um Piranha og næla sér í bita. Allt annað er étið fyrr eða síðar, jafnvel Rafael líka.
User avatar
alexus
Posts: 84
Joined: 18 Dec 2007, 23:18
Location: Reykjavík,104

piranhas eru cool

Post by alexus »

V'a hvað þeir eru ógeðslega flottir:D sést langar leiðir að það er farið vel með þá gott fæði :D
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

vá svaka flottir komdu bráðum með smá up-date á myndir :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:vá svaka flottir komdu bráðum með smá up-date á myndir :D
Ég er nokkuð viss um að hann sé búinn að selja þetta allt.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

ok sorry vissi þetta ekki :oops:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
bibbinn
Posts: 156
Joined: 19 Feb 2008, 21:30
Location: brh

;)

Post by bibbinn »

hversu stórt er þetta búr
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þetta er 400l Juwel Búr :D
Ég er að fara að fá þannig ligga ligga lái.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: ;)

Post by Vargur »

bibbinn wrote:hversu stórt er þetta búr
Það er best að lesa bara þráðinn. :?
Post Reply