250 lítra búrið mitt

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Elloff
Posts: 86
Joined: 29 Jun 2008, 16:13

250 lítra búrið mitt

Post by Elloff »

Hér er búrið mitt.
Íbúar eru;
Ca 15 cardinálar
3 skalar
3 sem mér skilst nú að séu false sae. (Á ég ekki að losa mig við þá?)
3 ancistrur sem mér finnst stækka lítið.
2 Yoyo botiur
1 zebra danio
1 bolivian ram
1 Aphistogramma Cacatuies
1 sem ég veit ekki hvað er.

Image

Heildarmynd af búrinu, það ber þess etv merki að vera sett upp í flýti, ég hef ekki "endurinnréttað" að ráði þessa ca 18 mán. sem búrið hefur verið uppi, það eru tvær rætur, þessi hægra megin og svo ein lítil f. miðju sem er bak við þykknið.

Image

Þarna er Bol. raminn minn, er þetta ekki kk? þarf að koma mér í það að losa mig við hann, er ekki alveg að falla fyrir þeim, makinn drapst f. nokkrum mánuðum. Sést í eina ancistruna þarna, mér finnst þær stækka hægt, er etv. of latur við grænmetisgjafirnar.

Image
Hér er hinn piparsveinninn, þarf annað hvort að fá mér kerlingu/kerlingar handa honum eða láta hann, hallast að því að láta hann þar sem kerlingar hafa enst illa hjá mér.

Image
Mér finnst þessi planta ekki líta nógu vel út, sjáið hvað blöðin eru götótt, hvernig stendur á þessu? Yfir höfuð er ég ekki alveg nógu kátur með hvernig gróðurinn lítur út.

Image
Önnur gróðurmynd, takið eftir gulleita blænum á anubias og blettaþörungnum, ráð vel þegin.

Image

Getur einhver sagt mér eitthvað um litla fiskinn á plöntunni vinstra megin við skalann, hann var laumufarþegi í pokanum eftir eina verslunarferðina.
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

sýnist þetta bara vera sae eða flying fox :)
Elloff
Posts: 86
Joined: 29 Jun 2008, 16:13

Post by Elloff »

Nei það held ég ekki, er með 3 slíka sem komu til mín pínulitlir, þessi er ekkert líkur þeim.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hvorugt, þessi fiskur kallast Oto/Otocinclus Affinnis. Laglegt búr hjá þér.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

jebb, oto.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

litli fiskurinn neðst er Oto ( Otocinclus affinis ) dugleg þörungaæta í rólegri kanntinum.. verða um 4cm.

las á netinu að sverðplöntur (og aðrar plöntur) eiga það til að verða götóttar ef mikið nitrit safnast fyrir í þeim. Bara vera duglegur að skipta um vatn og fjarlægja götótt blöð þegar þau birtast

Líklega járnskortur sem er að hrjá Anubiasinn...
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply