Fiskabúrið mitt. Afrikanar og Amerikanar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Fiskabúrið mitt. Afrikanar og Amerikanar

Post by Ólafur »

Ég setti upp sikliðubúr sem inniheldur bara ameriskar sikliður´i byrjun mai á þessu ári og hefur bara gengið vel.

Á þessum þræði ætla ég að halda einskonar dagbókafærslu en kem þó ekki til með að skrifa daglega :)

Ekki er nú verra að skella einni mynd inn svona til gamans af búrinu.

Image

Það nýjasta er að ég kúplaði út Pictus og gúrami fiskunum i kvöld þannig að búrið er bara með sikliðum núna.

Mer finnst Pictusin ekki passa nógu vel inn i þetta form þar sem ég er með frekar rólega fiska en þessi var bókstaflega á fullu allan dagin og mér fannst það truflandi,siðan stóð alltaf til að fjarlægja gúrami fiskana þegar mig vantaði pláss enda þvilikar frekjur.
Last edited by Ólafur on 28 Jan 2014, 20:38, edited 4 times in total.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Héna er Pictus in sem ég tók úr búrinu og þið megið vita það að hann er til sölu 8)

Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Er Pictusinn ekkert grimmur við minni fiska?
Er hann algjör botnfiskur?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er samála þér með Pictusinn, hann getur farið í taugarnar á manni með þessum látum sínum.
Hann getur étið minni fiska og seyði, það eru einna helst hægfara fiskar sem hann japlar á og eru Gubbykarlar í uppáhaldi.

Ég er með þennan í einu af mínum búrum. Þetta er Synodontis Petricola, alveg bráðskemtilegur fiskur og gaman að horfa á hann, það er samt sjaldgjæft að maður sjái hann, einna helst að hann læðist um búrið rétt eftir fóðrun og er snöggur í felur ef hann verður var við hreifingu.
Image
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

mér finnst pictus reyndar algjört æði . . verða alveg geggjaðir á matartíma og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þeir leifi matnum sínum . rotnandi matur er ekki valmöguleiki .. .. spurning um að hafa 1-2 í óskarsbúri ?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Já ég er allavega feginn að hann sé farin 8)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Hér ætla ég að kynna fiskana mina, eina tegund i einu og ber fyrst að nefna þá tegund sem fer með völdin i búrinu.

Salvini

Image

"Salvini’s Cichlid (Yellow Belly Cichlid)
Cichlasoma salvini

Stærð: 22 cm.

Kynin: Kvenfiskurinn er minni og sýnir stundum meiri litbrigði en karlfiskurinn

Um fiskinn: Salvíni siklíðan er mjög aðlaðandi fiskur. Hún blandast frekar vel í samfélagsbúrum með síkliðum af svipaðri stærð, en getur þó verið óútreikn- anleg þannig að hafa þarf auga með henni.

Æxlun: Þessir fiskar eru frábærir foreldrar. Þeir hrygna venjulega í litlum hellum eða holum og hrognin klekjast út á 3 dögum. Foreldrarnir vernda seiðin og reka í hjörð (sjá myndir). Stundum hugsa báðir foreldrar um hjörðina, og stundum bara kvenfiskurinn.

Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafshlið Suður-Mexíkó til Gúatemala og Belís.

Búrstærð: 400 l

Hitastig: 22-32°C

Sýrustig (pH): 7-8

Harka (gH): 5-20"

Heimildin tekin af Vef Furðufugla & Fylgifiskar

Þessi fiskur er frekar quick og grefur sér holu i sandin hjá mér þar sem parið eyðir drjúgum tima. Skemtilegur og fallegur fiskur sem greinilega lætur ekki vaða neitt með sig.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Gleymdi að nefna það að ég er með 3 Salvini, einn karl og tvær kellur held ég og parið á eftir að ganga frá þessari ein kellu þvi hún greyið má ekki láta sjá sig þá er hún hundelt.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þá ber næst að nefna Jack Dempsey:

Image

"Jack Dempsey Cichlid
Cichlasoma octofasciatum

Stærð: 25 cm.

Kynin: Hængurinner stærri og litskrúðugri en hrygnan og uggarnir spíssaðri. Annars er útlitsmunur lítill.

Um fiskinn: Þetta er ótugtalegur fiskur sem útskýrir hvers vegna hann er skírður í höfuðið á hnefaleika- kappa! Hann ætti bara að vera með fiskum af sömu stærð í búri, en það er auðvelt að ala hann og rækta undan honum.

Æxlun: Þessar siklíður hrygna á víðavangi og verja svo eggin og seiðin samviskusamlega. Þær hrygna reglulega yfir árið og allt að 500 hrognum í einu. Karlfiskurinn getur orðið mjög árásargjarn yfir æxlunartímann og jafnvel slasað kvenfiskinn sé hún ekki til í tuskið.

Uppruni: Norður og Mið-Ameríka: Atlantshafshliðin frá suðurhluta Mexíkó (Papaloapán-fljóti) til Hondúras (Ulua-fljóts)

Búrstærð: 400 l

Hitastig: 22-30°C

Sýrustig (pH): 7-8

Harka (gH): 9-20

Fóður: Þurrfóður, blóðormar, skordýr, smáfiskar."

Heimild tekin úr vef Furðufugla og fylgifiska


Þessir fiskar eru tiltölulega rólegir hjá mér allavega enn.
Flottir og tignalegir fiskar,hef orðið vitni samt að þvi að hann hefur verið að munnhöggvast við stærsta nýja Óskarinn minn en ekkert alvarlegt ennþá. Er með þrjá svona,held að það séu 2 kellur og einn kall en er samt ekki viss.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Siðan kemur Spilurum,þessi efri.

Image

"Bláeygða siklíða
Blue-eyed Cichlid
Cichlasoma spilurum

Stærð: 12 cm

Kynin: Karlfiskurinn er stærri en kvenfiskurinn.

Um fiskinn: Þessir fiskar eru í góðri stærð og auðvelt er að ala og rækta þá. Þeir sýna litbrigði og mökunarferlið beint fyrir framan þig, þar sem þeir eru alls ekki feimnir.

Æxlun: Bláeygða siklíðan fjölgar sér auðveldlega, og notar steina til að hrygna á. Þeir eignast mikinn fjölda afkvæma í einu og best er að aðskilja seiði og foreldra innan 2 vikna.

Búrstærð: 100 l

Hitastig: 25°C

Sýrustig (pH): 7

Harka (gH): 3

Fóður: Þurrfóður"

Heimild tekin af vef Furðufugla og Fylgifiska

Geysilega skemtilegir og forvitnir fiskar og alls ekki feimnir.
Er með þrjá svona og eru þeir minstir af búrfélögunum.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Og þá er það Óskarinn.

Image

"Oscar
Astronotus ocellatus

Stærð: 40 cm, oftast um 30 cm. Getur þyngstur verið um 1,5kg. Góður matfiskur en hægvaxta.

Kynin: Erfitt er að þekkja sundur kynin.

Um fiskinn: Óskarinn grefur upp plöntur svo að það verður að ganga vel frá þeim eða nota flotgróður. Þeir eru frekar grimmir og éta minni fiska, en eru að sama skapi heilmiklir persónuleikar og hænast að eiganda sínum. Til eru amk. þrjú litbrigði - rauður (efsta mynd), tígris (mið mynd) og venjulegur, og síðan albínó af þeim öllum (neðstu myndir). Einnig til slæðuafbrigði.

Æxlun: Þeir mynda pör og hrygnir kvenfiskurinn 1.000-2.000 hrognum á steina. Búrið þarf að vera stórt, um 500 l. Þegar hrognin klekjast út koma foreldrarnir seiðinum fyrir í dældum og verja þau.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts í Perú, Kólombíu, Brasilíu. Finnst einnig í Frönsku Gvæjana.

Búrstærð: 400 l

Hitastig: 20-24°C

Sýrustig (pH): 6-8

Harka (gH): 5-19

Fóður: Þurrfóður, rækjur, blóðormar, smáfiskar."

Heimild Furðufuglar og Fylgifiskar"

Er með tvo red Óskara
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þá er Salvini búin að hrygna i fjórða sinn.
Nú leita ég ráða hjá ykkur reynsluboltunum til að reyna koma þessum seiðum upp,að minstakosti einhverjum hluta.
Get náð hrognunum með þvi að sjúga þau upp i slöngu og koma þeim fyrir i annað búr en siðan hvað svo? Þarf að bæta einhverju i vatnið til að halda þessu á lifi? :?
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Er útilokað að discusar gætu lifað með þessum fiskum sem ég er búin að telja upp, eru miklar likur á þvi að þeir deyji sama hversu stórir þeir eru.

Hefur einhver reynslu af Ropefiski eða öðru nafni Snakefish?
Ganga þeir með minum?
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ert þú að tala um þennan?

Image

Image



Ég hef allaveganna reynslu af þessum og það voru engin vandræði milli hans og afrísku síkliðana og convict. Það eina sem þarf að passa er að hann geti ekki stokkið uppúr búrinu og að hann hafi felustaði á botninum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú ættir að geta sett hrognin í sér búr með loftdælu. Passa að taka strax burtu hrogn sem fá fungus og jafnvel setja líka fungusvarnarlyf búrið.
Er ekki betra að taka bara seyðin frá þegar þau koma ?

Ég held að diskus passi illa í búrið þitt.

Hvaðan kemur Ropefish áhuginn hjá þér Ólafur ? Þeir eru ansi flottir.
Hvað kom uppá hjá þínum Guðjón ? Ég man ekki eftir að hafa rekist á Ropefish hjá þér.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

ég átti ropefisk fyrir uþb. 16 árum eða svo (úff hvað maður er að verða gamall) og það gékk mjög vel var í búri með skölum .. man samt að hann faldi sig í botnhreinsinum synti semsagt niður rörið og undir mölina .
kom upp til að éta (rækja var í uppáhaldi) og stækkaði og stækkaði.

hef heyrt að ef þeir finni smáglufu á búrlokinu þá endi þeir á gólfinu ,
séu miklir flóttalistafiskar.

las líka einhverstaðar að þeim liði betur þegar þeir eru 2 eða fleiri einn var víst ekki svo gott á sínum tíma...

ég var mjög hrifinn af þessum fisk og sá alltaf eftir honum en ég seldi skalabúrið og hann með. . .
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Gudjon wrote:Ert þú að tala um þennan?

Image

Image



Ég hef allaveganna reynslu af þessum og það voru engin vandræði milli hans og afrísku síkliðana og convict. Það eina sem þarf að passa er að hann geti ekki stokkið uppúr búrinu og að hann hafi felustaði á botninum.
Nákvæmlega
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Vargur wrote:Þú ættir að geta sett hrognin í sér búr með loftdælu. Passa að taka strax burtu hrogn sem fá fungus og jafnvel setja líka fungusvarnarlyf búrið.
Er ekki betra að taka bara seyðin frá þegar þau koma ?

Ég held að diskus passi illa í búrið þitt.

Hvaðan kemur Ropefish áhuginn hjá þér Ólafur ? Þeir eru ansi flottir.
Hvað kom uppá hjá þínum Guðjón ? Ég man ekki eftir að hafa rekist á Ropefish hjá þér.
Veit ekki hvaðan áhugin kemur en það var bara þannig að ég fór með Pictusin i Vatnaveröld og vildi skipta og sá Rope fiskin i bland með Óskurum þar og vildi prófa.
Einn er komin og annar bætist við á morgun.
Sem sagt nýjasti meðlimur minn er Ropefish eða snakefish.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Já ég bjóst við svoleiðis svari um discusa en mikið dj... langar mig að prófa :)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Góður ! Hvað er skepnan stór ?
Voru einhverjir flottir Óskarar þarna ? Stærð ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ólafur wrote:Já ég bjóst við svoleiðis svari um discusa en mikið dj... langar mig að prófa :)
Sliplips getur kanski sagt þér aðeins frá því hvað þeir eru skemmtilegir :wink:
Mér hafa aldrei þótt þeir spennandi en skil alveg að fólk fíli þá.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þar sem mér hefur þótt leiðilegt við discusa er að það má ekki blanda þá saman við aðrar tegundir.
Mig langar bara til að demba svona þrem til fjórum meðalstórum i búrið hjá mér og bara....
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Yesss, þetta eru æðislegir fiskar.
Yfirleitt frekar rólegir og svo eru þeir svo tignarlegir.
Oft fannst mér eins og ég væri með litla hvolpa því þeir komu syndandi á móti manni og liggur við að þeir hafi brosað til manns.

Þeir þurfa frekar rólega búrfélaga og ekki árásargjarna. Reyndar var það orðið þannig hjá mér að ég var bara með þá eina í búri ásamt einhverjum ryksugum því þeir eru mjög viðkvæmir fyrir veikindum og ég vildi ekki vera að ógna þeim með einhverjum ódýrum fiskum.
Í bókum sem ég hef lesið er einna helst mælt með kardinálatetrum sem félögum ef maður ætlar að hafa fleiri tegundir.

Annars hafa allir sínar sögur að segja um umhirðu en þetta eru langfallegustu (og langdýrustu) fiskar sem ég hef átt.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Vargur wrote:Góður ! Hvað er skepnan stór ?
Voru einhverjir flottir Óskarar þarna ? Stærð ?
Hún er um 20 cm og að mér virðist bara sallaróleg :)
Já Óskararnir voru flottir.
Svona eins og tigris en það vantaði rauða litin.
Er að hugsa um tvo á morgun 8)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Vargur wrote: Hvaðan kemur Ropefish áhuginn hjá þér Ólafur ? Þeir eru ansi flottir.
Hvað kom uppá hjá þínum Guðjón ? Ég man ekki eftir að hafa rekist á Ropefish hjá þér.
Ég var með 2 ropefish fyrir um 8 mánuðum eða svo, annar komst uppúr og hinn dó í sýkingunni sem tók hálft búrið mitt á þessum tíma
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þá eru Rope fiskarnir orðnir tveir og svo keypti ég einn Óskar i viðbót :)
Þá held ég að juwelbúrið henti rope fiskum þvi það er nær ómögulegt fyrir þá að stökkva uppur nema ég sé að gefa eða þrifa. :?
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Myndir !!! Hvað er nýji Óskarinn stór ?

Já, Juwel búrin eru snilld, lokin og ljósin eru þau þægilegustu sem ég hef komist í kynni við. Ég á von á 2 stk 300 l. í viðbót við hin. :wink:
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Myndir koma :) Óskarinn er svona 4-6 cm
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Hérna er Óskarinn fyrir miðju sem ég verslaði i dag.

Image

Sjáiði stærðamunin á Red Óskurunum einu sinni voru þeir jafn stórir :lol:
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Hérna kemur svo Snakefish

Image
Image
Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Post Reply