Álar!!?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Áll
Posts: 9
Joined: 22 Jan 2008, 18:13

Álar!!?

Post by Áll »

Ég fékk 2 ála frá félaga mínum og okkur var sagt að þeir gætu verið í búri með skjaldbökunni okkar sem er um 4cm. En ég veit ekkert um ála og ég er orðin ansi hrædd um líf þeirra! Annar þeirra er stærri en hinn og hann var vanur að synda um en nú lætur hann ekki sjá sig! Þessi minni kemur út úr grjótinu til að éta og já ég veit ekki hvað þeir éta.. nema allavega rækjur!! Þessi minni er allavega með eitthvað í maganum.. ekki rækju samt.. hann er með "bumbu" og það áður en hann borðar! Hvað þarf ég að gera til að halda þeim á lífi? Hvað er of heitt fyrir þá og kalt og já ...bara ALLT!! og hvaða bumba er þetta á álinum?

OG hvaða tegund er þetta eiginlega

Image

Image

Image
svona aðeins til að sjá stærðina

Fyrir fram þakkir
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta eru Ropefish, hér er smá fróðleikur um þá tekin úr monsterþræðinum hjá Andar pogo
Ropefish (Erpetoichthys calabaricus)

Uppruni: Afríka
Stærð: Allt að 90cm en oftast ekki meira en 50cm í búrum

Ropefish er skyldur Polypterus og er frekar sambærilegur þeim hvað varðar umönnun.
Hann er kjötæta og étur allt sem kemst upp í hann.
Ropefish eru næturfiskar en eru samt nokkuð aktívir á daginn og kunna best við sig nokkrir saman.
Það er nauðsynlegt fyrir þá að hafa góða felustaði því annars reyna þeir að troða sér upp úr búrinu eða inn í dælur. Þeir eru flóttasnillingar og þarf því að loka búrinu vel.
Það er hægt að kyngreina þá með því að telja fjölda ugga aftan á þeim. Karlinn er með 12-15 en konan 9-12.
Ekki að það skipti miklu máli þar sem þeir fjölga sér ekki í fiskabúrum.


Ég veit nú ekki hversu góðir þeir eru með skjaldböku en sjálfsagt er það í lagi meðan hún er svona lítil.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Ef bumba kemur á þessa fiska (og aðra í polypterus fjölskyldunni) er möguleiki að það séu steinar/möl sem fiskurinn hefur gleypt.
Þessvegna er mælt með mjög fínni möl eða sandi með þessum fiskum.
-Andri
695-4495

Image
Áll
Posts: 9
Joined: 22 Jan 2008, 18:13

Post by Áll »

Takk. Ég er með steina í botninum.. engan sand. Hann væri ekki á lífi ef hann hefði geta sett svoleiðis uppí sig!! :shock:

en Hvað mæliði með að ég gefi honum annað en rækjur?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

lambahjarta, nautahjarta, ánamaðka t.d. og fiskamat sem sekkur.
mínir éta nánast bara rækjur en stundum næla þeir sér í botnfóður.
-Andri
695-4495

Image
Áll
Posts: 9
Joined: 22 Jan 2008, 18:13

Post by Áll »

ókey flott. Hvernig þarf hitinn að vera í búrinu? Bíta þeir gullfiska? bara svona til að vera viss!??

Þeir eru báðir á lífi ennþá en þessi stærri étur aldrei (að ég sé) og hreyfir sig nánast aldrei!!!
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

í kringum 25° er þeirra kjörhitastig, hvað ert þú með?
þeir geta bitið í gullfiska já en það er eflaust misjafnt, einn af mínum gerir það en hinir ekki.

Viltu svo ekki koma með upplýsingar um búrið þitt, hvað er það margir lítrar og eru bara skjaldbökurnar í því?
-Andri
695-4495

Image
Áll
Posts: 9
Joined: 22 Jan 2008, 18:13

Post by Áll »

Við erum með 26-27°C í búrinu þar sem að bakan er bara ungi (Yellow bellied slider) Svo erum við með 2 ryksugur og VORUM með 2 gullfiska! Við áttum bara þessa böku sem við björguðum frá vondum eigendum en það var einhver úr dýrabúð sem sagði að GULLFISKAR gætu verið með böku!! En allaveg þá er bara einn (ekki heill samt) gullfiskur eftir. Það er búið að bíta í sporðinn og bakuggan á honum :( Ég býst við því að það hafi verið bakan! En allvega við erum með búr sem er heimasmíðað (20ára) og það er rúmlega 400L með loki og innbygðu ljósi í lokið. Við erum með venjulega stóra steina í í búrinu og ropefish-arnir... eru alltaf þar á milli og undir. Við erum með litla steina í staðin fyrir sand í búrinu og ekkert land í augnablikinu þar sem að skjaldbakan hefur ALDREI farið uppá land hjá okkur! (búin að eiga hana síðan í okt)

Við búum ekki í bænum þannig að við höfum ekki verið að kaupa neitt almennilegt í búrið en það verður í næsta mánuði... Ég bara veit ekki alveg hvað skal kaupa :roll:
Jú svo erum við auðvita með dælu! Tunnudælu:)

Ég veit svo lítið um þessi dýr.. en ég er búin að lesa mér til um skjaldbökur.. og er byrjuð að lesa um ropefish

Takk fyrir alla hjálp :)
Post Reply