Rækjubúrið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Rækjubúrið

Post by Ólafur »

Ok hér er ég algjör nýgræðingur og veit ekkert um rækjur. Nýbúin að setja upp rækjubúr.
Vil ráð og coment frá þeim sem hafa ráð og reynslu. :)
Eru til margar tegundir af ferskvatnsrækju?
Er hægt að hafa fiska með án þess að þær verði étnar? (Þær eru svo litlar :roll: )
Hvað ber að varast og hvað er gott?
Þarf að gefa þessu?
Er hægt að hafa humar með rækjum?


Kv
Ólafur
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Rækjubúrið

Post by keli »

Mjög margar tegundir til, margar skyldar og geta fjölgað sér saman.
Engir fiskar. Sama hve smáir, þeir kroppa alltaf eitthvað í þær.

Það borgar sig að gefa þeim. Lítið. Snöggsoðið spínatblað og eitthvað þvíumlíkt öðru hvoru er mjög vinsælt.
Humar gengur. En hann étur þær. Spurning hvort það teljist nokkuð að ganga :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Re: Rækjubúrið

Post by Ólafur »

Já Keli það minnir mig á þegar ég verslaði nokkra humra i 400 búrið,svona sæmilega stóra hehe, en það var fyrir 50 cm Arowana sem stóð á blistrinu skömmu seinna :lol: þá var humarhátið hjá sumum.
Takk fyrir þessi coment Keli og ég fer að stúdera rækur öðrvisi en að hafa þær i samloku 8)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Rækjubúrið

Post by keli »

Ég er með 50 lítra rækjubúr, og er með 3stk otocinclus með rækjunum. Það sést voðalega lítið af ungum rækjum eftir að ég setti ottóana með. Samt er nóg að éta og ottóarnir venjulega taldir einir af þeim fiskum sem ganga hvað best með rækjum.

Image
Svona leit það út í byrjun nóvember..

Flotgróðurinn er alveg búinn að taka yfir - sem ég kann ágætlega við, rækjurnar hafa skjól og næringu í honum og þá fer ekki alveg jafn mikið ljós í búrið til að valda þörungavandamálum.
Image

Image

Svo blómstrar flotgróðurinn stanslaus.. Ekkert voða merkileg blóm samt :)
Image
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Re: Rækjubúrið

Post by Ólafur »

Flottur :góður:
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
elliÖ
Posts: 231
Joined: 26 Feb 2010, 00:11
Location: Reykjarvík

Re: Rækjubúrið

Post by elliÖ »

:góður: flottir halarnir á flot gróðrinum
Elvar
Aquastabil 530L diskusar
130L japanis endler
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Rækjubúrið

Post by keli »

elliÖ wrote::góður: flottir halarnir á flot gróðrinum
Ég viðurkenni fúslega að þeir eru stundum óþarflega flottir... Tekur aðeins of mikið pláss :) En rækjurnar njóta góðs af því.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Rækjubúrið

Post by Vargur »

Óli, þú skoðaðir greinilega ekki nógu vel í búrin hjá mér þegar þú komst í heimsókn.
Ég er með mörghundruð rækjur í búrunum mínum og þær ganga vel með endler,guppy, molly, ancistum og corydoras hjá mér.
Það kom mér mikið á óvart að stórir fiskar eins og molly virðast láta rækjurnar í friði, ég sé þá stundum grípa rækju en alltaf spýta henn út aftur.
Ég er meira að seigja farinn að háfa rækjur úr þessum búrum og nota sem fóður fyrir aðra fiska.
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Rækjubúrið

Post by snerra »

Vinnur ekki flotgróður á Amoníaki ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Rækjubúrið

Post by keli »

Nii. Bakteríur vinna á ammóníaki og nítríti. Allur gróður er hinsvegar (mis)duglegur að taka upp nítrat. Hraðvaxta plöntur eins og flotgróðurinn eru sérstaklega hentugar að því leyti.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Rækjubúrið

Post by Elma »

Ég var með búr þar sem cianobacteria var allsráðandi.
Svo setti ég vatnakál í búrið og cianobakterían hvarf eftir nokkra daga.
Spurning hvort að það hafi verið kálinu að þakka?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Rækjubúrið

Post by snerra »

Er þetta Azolla caroliniana , það er að segja flotgróðurinn ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Rækjubúrið

Post by keli »

snerra wrote:Er þetta Azolla caroliniana , það er að segja flotgróðurinn ?
Nei.. Veit samt ekki hvað hann heitir :)




Sorry Ólafur, það var ekki planið að taka yfir þráðinn þinn :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Re: Rækjubúrið

Post by Ólafur »

:) Ekkert mál. Fagna allri umræðu
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Post Reply