Doppa á höfðinu á gullfisk

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
eva
Posts: 16
Joined: 01 Nov 2009, 19:35

Doppa á höfðinu á gullfisk

Post by eva »

Ég er alveg nýr fiska eigandi. Og veit því ekki alveg hvort þetta sé eitthvað til að hafa áhyggjur af eða ekki.

En annar gullfiskurinn er komin með einhvað svona bump á höfuðið mitt á milli augnanna. Er eitthvað hægt að láta kíkja á krílið eða er svona bara eitthvað sem maður reynir að googla og finna út úr sjálf?

http://pets.webshots.com/photo/20902211 ... vhost=pets
Þetta er besta myndin held ég sem ég var að ná af fisknum. Komst að því líka að það er hátíð að mynda fjöruga hvolpa og kettlinga miðað við fiska ;)
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

hæ og velkomin á spjallið ég hef voðalega lítið að segja annað en það fylgir vírus eða eitthvað "pop up" með þessum link.... notaðu frekar www.fishfiles.net
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

ohh no's its a mole
Rena Biocube 50: tómt eins og er
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

bwahahahahahaha :pot:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta er líklega eitthvað sár. Hvað er hann í stóru búri og hvað skiptirðu oft um vatn? Eru einhverjir fiskar með honum?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
eva
Posts: 16
Joined: 01 Nov 2009, 19:35

Post by eva »

Þeir eru tveir saman í svona 12 lítra blómavasa ef ég er ekki alveg afleit í stærðfræði.

Eru sko búnir að búa þarna saman í sátt og samlyndi í sennilega um 2 mánuði. En fluttu til okkar fyrir um 1,5 viku síðan. Þá var skipt um nánast allt vatnið og steinarnir skolaðir létt. Síðan höfum við verið að skipta um svona 2 vatnsglös á 3 daga fresti.

Vissum hreinlega ekki að svona þrif værum allt of mikil. En erum núna búin að lesa þarna reglurnar 10 og förum eftir þeim. Búrið verður bara að fá að vera svolítið gruggugt svona fyrst um sinn þar sem við gáfum þeim líka alltof mikið að borða fyrst.

Gæti hann eitthvað hafa slasast í flutningunum? Þeir virðast nefnilega voða góðir vinir og ekkert að hrekkja hvorn annan og það var ekkert í búrinu nema steinar í botninum þar til bara í gær að þeir fengu gervi plöntu. Veit eiginlega ekki alveg hverju hann ætti að hafa fengið sár af.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi skipta um aðeins meira af vatni en þetta, t.d. 50% af vatninu vikulega, og jafnvel drífa í svona 70% vatnsskiptum núna til að flýta fyrir að sárið grói. Ef vatnsgæðin eru ekki nógu góð þá grær sárið seint og er móttækilegra fyrir sýkingum. Svo sakar ekki að setja svona 20-30gr af grófu kölusalti í búrið til að flýta fyrir gróandanum

50% vikulega hljómar kannski frekar mikið en það er bara tæp skúringarfata af vatni, tekur líklega ekki meira en 5mín og fiskunum líður miklu betur. Svo er mikilvægt að passa að gefa alltaf lítið - fiskar þurfa mjög lítinn mat og allur óétinn matur er fljótur að rotna og veldur því að vatnsgæðin lækka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
eva
Posts: 16
Joined: 01 Nov 2009, 19:35

Post by eva »

keli wrote:Ég myndi skipta um aðeins meira af vatni en þetta, t.d. 50% af vatninu vikulega, og jafnvel drífa í svona 70% vatnsskiptum núna til að flýta fyrir að sárið grói. Ef vatnsgæðin eru ekki nógu góð þá grær sárið seint og er móttækilegra fyrir sýkingum. Svo sakar ekki að setja svona 20-30gr af grófu kölusalti í búrið til að flýta fyrir gróandanum

50% vikulega hljómar kannski frekar mikið en það er bara tæp skúringarfata af vatni, tekur líklega ekki meira en 5mín og fiskunum líður miklu betur. Svo er mikilvægt að passa að gefa alltaf lítið - fiskar þurfa mjög lítinn mat og allur óétinn matur er fljótur að rotna og veldur því að vatnsgæðin lækka.
Ætla að prufa að drífa í vatnsskiptum og salti núna (heppin ég að hafa ekki verið búin að búa til rósmarín salt úr öllu kötlu saltinu;).

Hvernig er það á ég bara að fjarlægja alveg 70% af vatninu og setja nýtt í staðin og svo saltið út í eða? Vil ekki vera að misskilja og drepa fiskana.

þessi 50% vikulega ættu þau að dreyfast yfir vikuna eða bara vera einu sinni í viku?

Er einhver möguleiki á að maður gefi fiskunum of lítið þegar er verið að passa að þeir fái ekki of mikið?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Rétt - Taka 70% úr, setja ferskt í (hafa sama hitastig á vatninu sem fer í!!) og setja saltið svo. Það á aldrei að taka allt vatn og möl úr búri og hreinsa allt draslið - alltaf bara skipta um part af vatni og ryksuga mölina.

50% einu sinni í viku er betra en dreift yfir vikuna.

Það er afar ólíklegt að gefa fiskum of lítið - yfirleitt er hægt að gefa eins lítið og maður þorir, og taka svo helminginn af því og láta það duga :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
eva
Posts: 16
Joined: 01 Nov 2009, 19:35

Post by eva »

Keli vildi bara þakka kærlega fyrir greinilega ofur gott ráð.

Noah er allur að koma til á ekki lengri tíma

http://www.youtube.com/watch?v=RrmpQglP8Lc bumpið á sunnudags kvöld

http://www.youtube.com/watch?v=75qmBscALQE og svo í dag er það varla sjáanlegt nema með góðum vilja sér aðeins móta fyrir að hafi verið sár.
Post Reply