Yellow Lab að veslast upp!

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
voffi.is
Posts: 93
Joined: 21 Jul 2007, 21:08
Location: Reykjanesbær

Yellow Lab að veslast upp!

Post by voffi.is »

Sæl öll!

Annar Yellow Labinn minn hefur nánst ekkert borðað í rúma viku. Setji hann upp í sig bita spýtir hann honum aftur út. Hann fer oft undan í flæmingi þegar hinir borða. Ekki að sjá neina bletti eða sár eða þvíumlíkt, sé bara að hann er að horast.

Veit einhver hvað er að?
Allir hinir fiskarnir í búrinu (Malawíbúr) eru hressir. :?:

kveðja,
Elskum dýrin án skilyrða......
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

eru nokkuð rauðir þræðir út um gotraufina á honum?
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Er labinn nokkuð mikill um kjálkann og er etv kerling? Ef svo er, þá er hún með seiði uppí sér og mun ekkert éta í 3-4 vikur :)

Annars getur þetta verið margt, líklega einhver bakteríusýking. Hvað sem þetta er, þá sakar ekki að hækka hitann um 1-3 gráður og smella smá salti í - t.d. 2gr á líter (í 2 skömmtum með nokkurra klst millibili)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
voffi.is
Posts: 93
Joined: 21 Jul 2007, 21:08
Location: Reykjanesbær

V / yellow lab

Post by voffi.is »

Get ekki séð að hann sé með seyði, hann opnar munninn stundum og finnst mér ekkert að sjá og hann er ekki mikill í kringum munninn, veit ekki hvort kynið þetta er, fæ mismunandi svör um það frá þeim sem vita meira. þeir eru báðir eins með dökkar rákir bæði að ofan og neðan. Einhvers staðar las ég að kvk. væri ekki með dökka rák að neðan??

Getur kannski einhver frætt mig um kyngreiningu á Yellow Lab??

Takk fyrir,
Elskum dýrin án skilyrða......
voffi.is
Posts: 93
Joined: 21 Jul 2007, 21:08
Location: Reykjanesbær

V / Yellow Lab

Post by voffi.is »

Já og ég gleymdi að segja að ég hef ekki séð rauða þræði úr gotraufininni á honum.
Hvað myndi það tákna annars??

kv.
Elskum dýrin án skilyrða......
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hljómar eins og hann sé með seiði í kjaftinum, þá ætti að sjást nokkuð áberandi undirhaka.
Gæti líka bara verið einelti.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Eru einhverjar breytingar á þessum fiski?
voffi.is
Posts: 93
Joined: 21 Jul 2007, 21:08
Location: Reykjanesbær

V / yellow Lab

Post by voffi.is »

Já merkilegt nokk Ásta!

Mér til mikillar gleði er fiskurinn að hressast. Nú fyrst í kvöld sá ég hann borða án þess að láta út úr sér :dansa: Ég gerði ekkert sérstakt, þetta bara breyttist sisona!

Best ég skjóti á ykkur einni spurningu hér: Þið sem eigið síkliður, gefið þið þeim blóðorma, las á erlendri vefsíðu að það væri ekki æskilegt fæði fyrir síkiliður :?:

Takk fyrir svörin
Elskum dýrin án skilyrða......
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Blóðormar eru ágætir í hófi fyrir alla fiska - svo lengi sem fiskurinn sé ekki grænmetisæta, eins og t.d. sumar afrískar síkliður, t.d. tropheus.

Þeir þykja þó ekki góðir fyrir ungfiska þar sem blóðormar eru með himnu utaná sér sem ungir fiskar eiga erfitt með að melta og geta stíflast af.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Malawi mbunur hafa ekkert sérstaklega gott af blóðormum og öðru svipuðu fóði þar sem meltingavegur þeirra ræðu illa við það. Það er er þó í fína að gefa blóðorma osf td. 1x í viku og gefa að mestu grænfóður aðra daga, td. Tetra pro vegtable og ýmislegt grænmeti til hátíðabrigða, gúrku, baunir, broccoli osf.
Post Reply