Bótíur og matur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Bótíur og matur

Post by Sirius Black »

Fékk mér tvær bótíur fyrir næstum tveimur vikum og var ég að spá í því hvað þær borða svona utan við snigla? Hvort að þetta séu bara svipuð dýr og ancistrur sem að hreinsa botninn og svoleiðis :) Eða hvort að maður þurfi að gefa þeim eitthvað sérstakt? Vil að þær fái nóg að borða hjá mér og veslist ekki upp :P þó að það sé nóg af sniglum þá kannski eru þær ekki að borða þá svo mikið eða eitthvað :)

Annars eru þetta trúðabótía og randabótía (held ég :P)
200L Green terror búr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

bótíur eiga að éta nánast hvaða fiskamat sem er, flögur, botntöflur, frosið...

Þú þarft bara að passa að maturinn nái til þeirra ef fleiri fiskar eru með þeim því þær éta af botninum, stundum er maturinn kláraður af öðrum fiskum áður en hann nær niður á botn.
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gúrkubiti og margt annað grænmeti kemur líka sterkt inn.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Andri Pogo wrote:bótíur eiga að éta nánast hvaða fiskamat sem er, flögur, botntöflur, frosið...

Þú þarft bara að passa að maturinn nái til þeirra ef fleiri fiskar eru með þeim því þær éta af botninum, stundum er maturinn kláraður af öðrum fiskum áður en hann nær niður á botn.
Já ég einmitt gef það mikið að eitthvað detti á botninn :) er líka með 6 ancistrur sem að stækka hratt og borða vel af botninum þannig að ég hef engar áhyggjur af mat sem að dettur á botninn :)

En gott að þær borði bara eitthvað svoleiðis, hef eitthvað séð þær vera að narta í botninn en var ekki alveg viss :)
200L Green terror búr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Vargur wrote:Gúrkubiti og margt annað grænmeti kemur líka sterkt inn.
Já ég þarf að venja alla botnfiskana á að borða gúrku og svoleiðis :P hef stundum sett gúrku en hún kemur alltaf nær ósnert upp úr aftur :(
200L Green terror búr
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

spínat, grænarbaunir.
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

ef þú vilt gera vel við þær prófaðu þá blóðorma. Þær eru algjörlega vitlausar í þá.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ef þið gefið spínat, er þá blöðunum hent í búrið eða gerið þið einhverja köggla?
Post Reply