Val á síkliðum.

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Val á síkliðum.

Post by Jakob »

Þegar næstu 4 monsterin mín verða búin að stækka þá fæ ég mér 720L eða 900L búr.
Var að hugsa að breyta þá 400L búrinu í Afríku dollu.
Fór vel í gegnum fiskabur.is síðuna og fann eftirfarandi síkliður sem að ég vildi gjarnan hafa sem ungfiska en greinilega þyrfi ég að fækka í framtíðinni.
Var að hugsa hvort að ég gæti haft 3 af hverjum kannski.
Yellow Lab
Melanochromis Johanni
Cynotilapia afra white top
Cynotilapia afra Hai reef
Saulosi red coral
Pseudotropheus flavus
Pseudotropheus kingzeise
Pseudotropheus demansoni
Aulnocara Ob
Otopharynx lithobates
Cyrtocara moorii
Aulonocara hansbaenschi
Cyphotilapia frontosa
Væri hægt að setja þessar saman í búr?
Ef að ég þarf að fækka úr þessum lista, hvaða fiska ætti ég að taka út?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

:roll:
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ertu enn í Kristjaníu?
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

veistu hvað 720/900 lítra búrin kosta? :)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Frétti af einu 700L á 2mills... :shock:

Ertu að fara að kaupa þér Íbúð undir þetta allt Jakob? :roll:
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

keli wrote::roll:

Einmitt "Geisp"
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Inga Þóran wrote:veistu hvað 720/900 lítra búrin kosta? :)
Hann veður svo í peningum eftir ferminguna ;) :P nei ekkert smá sem að þessi búr kosta og ég efa að 14 ára strákur hafi efni á svoleiðis búri :shock: svona eins og ekkert sé.


Síklíðan:
En ertu ekki búinn að prófa einhverjar síklíður og það entist í hvað 2 daga? Held að þú ættir bara að halda þig við þessa fiska sem að þú ert með :) hefur enst með þá lengst. :P
200L Green terror búr
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Sirius Black wrote:
Inga Þóran wrote:veistu hvað 720/900 lítra búrin kosta? :)
Hann veður svo í peningum eftir ferminguna ;) :P nei ekkert smá sem að þessi búr kosta og ég efa að 14 ára strákur hafi efni á svoleiðis búri :shock: svona eins og ekkert sé.
hahaha sá hlýtur að hafa fengið mikinn pening ef hann hefur efni á svona búri :shock: maður ætti kannski að fara yngja upp :lol:

djók :wink:
User avatar
vkr
Posts: 166
Joined: 02 May 2008, 23:55

Post by vkr »

Kanski er hann kominn af efnuðu fólki ? mann spyr sig..
Þið eruð asnar og ég er fífl..
Þess vegna getum við verið vinir;)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já ég veit vel hvað það kostar.
Sirius: Þoli ekki svona þvælu. Hef átt marga fiska lengi :)
cut the crap... just answer my questions!
400L Ameríkusíkliður o.fl.
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

Post by eyrunl »

sko... skoðaðu fyrst fullvaxta stærðina á svona fiskum eins og frontosa verður mun stærri en yellow lab... ég átti yellow lab og johannii og þeim tókst alveg að vera saman í búri ef búrið er nógu stórt... johannii geta verið svoltið svæðisfrekir...
Eyrún Linda
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:Sirius: Þoli ekki svona þvælu. Hef átt marga fiska lengi :)
Eru það ekki bara fiskarnir sem þér hefur ekki tekist að selja?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Eyrún: Veit fulla stærð allra fiskanna þarna á listanum :)
Moori og Frontosur verða stærri en flestir fiskarnir þarna, mundi bara velja á milli.

Keli: :oops:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég mæli með gúbbý fiskum
Kv. Jökull
Dyralif.is
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Post by Gremlin »

Ég myndi allaveganna sleppa moori og frontosa en eflaust er frontosan hægvaxta án þess að fullyrða neitt. Ég myndi halda mig í 12-15 cm flokknum í blandað búr.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Squinchy wrote:Ég mæli með gúbbý fiskum
Myndi ekki mæla með þeim :P deyja of mikið hehe :P
200L Green terror búr
Post Reply