weirdo fiskar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

weirdo fiskar

Post by pinkie »

hey mér vantar smá ráð, er með 125 lítrla búr inni hjá mér sem voru með einum kribba, 3 balahákörlum, 3 keisaratetrum og 2 rygsugum en núna er kribbinn og balahákarlarnir dauðir og 2 keisaratetrunar byrjaðar að hegða sér skringilega. kom mér mikið á óvart þegar kribbin dó þar sem hann hegðaði sér ekkert undanlega en ég tók eftir því að á einum balahákarlinum var einn hvítur blettur á honum og á honum og einum oðrum var hreystið orðið geggt skrítið eins og það væri að detta af eða eitthvað álíka... þannig ég var að pæla er þetta einhver veiki eða ? eða er eitthvað að bakteríflóraninu eða hvað sem það kallast eða eitthvað sem ykkur dettur í hug ?
er ekki sniðugst að byrja að salta smá og hækka pínu hita ??
er salt magnið ein matskeið á 10 lítra ???

Með fyrir fram þökkum
Hulda
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hljómar eins og nitrat eða nitrit bomba.
Hvenær skiptir þú um vatn síðast og hefur þú mælt vatnsgæðin eitthvað ?
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

er ný búin að taka búrið allt í gegn annars er skipt um svona ca 30-40 í mesta lagi tveggja vikna fresti og já ég er með svona mælipróf sem ég keypti í dýragarðinum 5 in 1, seinast þegar ég mældi kom :
no3 = 0
no2 = 0
Gh = <3>6°d
no3 no2 það sama kh var 6 og pH 6,8 minnir mig
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvað gerir þú þegar þú tekur allt búrið í gegn?
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

skola af steinunum og skola búrið og skipti um 100 % vatn og skolaði svampana 2 sem eru í dælunni. svo setti ég eitthvað svona efni í búrið sem fylgdi því þegar ég keypti það í fiskó fyrir stuttu en þetta var fyrsta skiptið sem ég tók það í gegn það var á laugardaginn
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þarft ekki að tæma búrið og þrífa það svona vel. það drepur bakteríuflóruna góðu og burið fer að "cycla" og fiskar drepast...
reglulegu vatnsskiptin eru nóg.

ég gerði þetta alltaf hérna einu sinni því mér var sagt að gera það af gæludýraverslun. Enda drápust reglulega fiskarnir.
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

pinkie wrote:skola af steinunum og skola búrið og skipti um 100 % vatn og skolaði svampana 2 sem eru í dælunni. svo setti ég eitthvað svona efni í búrið sem fylgdi því þegar ég keypti það í fiskó fyrir stuttu en þetta var fyrsta skiptið sem ég tók það í gegn það var á laugardaginn
Uss, þetta eru allt of mikil þrif, sennilega drápust fiskarnir vegna ammoníak bombu enda engin flóra til að brjóta niður úrgangsefnin.
Skiptu um 70% af vatninu og þá ætti ástandið að vera í lagi.
Hér á spjallinu ætti svo að vera slatti af þráðum um vatnskipti og umhirðu búra.
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

ég eiginlega varð var komin með svo mikin þara en þrifið hafði ekkert með að fiskarnir drápust, þeir drápust allir áður en ég þreif búrið sko þannig er eitthvað annað sem ykkur dettur í hug ?
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

pinkie wrote:er ný búin að taka búrið allt í gegn annars er skipt um svona ca 30-40 í mesta lagi tveggja vikna fresti og já ég er með svona mælipróf sem ég keypti í dýragarðinum 5 in 1, seinast þegar ég mældi kom :
no3 = 0
no2 = 0
Gh = <3>6°d
no3 no2 það sama kh var 6 og pH 6,8 minnir mig
Þetta eru afar ólíklegar no3 og no2 tölur - líklega testkittið að klikka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

pinkie wrote:ég eiginlega varð var komin með svo mikin þara en þrifið hafði ekkert með að fiskarnir drápust, þeir drápust allir áður en ég þreif búrið sko þannig er eitthvað annað sem ykkur dettur í hug ?
Skólabókardæmi um eiturbombu.
Þörunginn losnar þú við með minni fóðrun, minna ljósi, örum vatnskiptum og þörungaætum.
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

no 3 og no 2 kemur alltaf hvít sem merkir 0
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þá er búrið ekki búið að cycla sig.
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

Vargur wrote:
pinkie wrote:ég eiginlega varð var komin með svo mikin þara en þrifið hafði ekkert með að fiskarnir drápust, þeir drápust allir áður en ég þreif búrið sko þannig er eitthvað annað sem ykkur dettur í hug ?
Skólabókardæmi um eiturbombu.
Þörunginn losnar þú við með minni fóðrun, minna ljósi, örum vatnskiptum og þörungaætum.
var að meina hvort ykkur dytti eitthvað annað í hug um það sem er að drepa fiskana mína
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

hvað er að cycla og hvað tekur það langan tíma því ég var að mæla aftur núna og þá kom aftur 0 við báðu
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

pinkie wrote:hvað er að cycla og hvað tekur það langan tíma því ég var að mæla aftur núna og þá kom aftur 0 við báðu
Þá eru að myndast góðu bakteríurnar sem að fara svo að brjóta niður nítrat og nítrít :) þegar það er cyclað þá eru þessar bakteríur að standa sig vel. En það getur tekið allt upp í 4 vikur minnir mig, held að það sé allavega ekki styttra en það :) Og áður en að það er cyclað þá þarf að vera duglegur í vatnsskiptum og skipta alveg einu sinni í viku um alveg 30%, eða ég gerði það allavega og allt lifir hjá mér :) og skipti reyndar enn alveg einu sinni í viku en stundum á 10 daga fresti :)
200L Green terror búr
pinkie
Posts: 66
Joined: 14 Apr 2008, 14:13
Location: Hfj

Post by pinkie »

Sirius Black wrote:
pinkie wrote:hvað er að cycla og hvað tekur það langan tíma því ég var að mæla aftur núna og þá kom aftur 0 við báðu
Þá eru að myndast góðu bakteríurnar sem að fara svo að brjóta niður nítrat og nítrít :) þegar það er cyclað þá eru þessar bakteríur að standa sig vel. En það getur tekið allt upp í 4 vikur minnir mig, held að það sé allavega ekki styttra en það :) Og áður en að það er cyclað þá þarf að vera duglegur í vatnsskiptum og skipta alveg einu sinni í viku um alveg 30%, eða ég gerði það allavega og allt lifir hjá mér :) og skipti reyndar enn alveg einu sinni í viku en stundum á 10 daga fresti :)
já ok þá veit ég það :d en dettur þér eitthvað í hvað gæti verið að drepa fiskanna mína ... ein keisaratetran mín er búin að haga sér svo óeðlilega núna seinustu daga... er öfug með haus niður og sporð upp og nær eilla bara að synda í hringi.. veistu eitthvað af hverju það er ?
Hulda (ég)
Kíkí (Gári)
Kókó (Gári)
Pjakkur (dverghamstur)
Post Reply