Gullfiskar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Gullfiskar

Post by Gunnsa »

Mig vantar basic upplýsingar um hvernig á að hugsa um gullfisk, ég er að fara að passa einn í 3 mánuði og kann ekki á þá :)
Passa allir gullfiskar saman? Sá sem ég er að fara að passa er einn og ég vildi gjarnan bæta við félagsskap fyrir hann
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Það eina sem þú þarft að gera er að gefa honum að borða bara lítið einu sinni á dag (það gerði ég við mína) en ég er ekki að fatta við hvað þú átt með hvort allir gullfiskar passi saman :?
En ég var með 3 gullfiska (1 slæðusporð og 2 venjulega) og bardagafisk í sama búri (10L) og það gekk bara mjög vel en ég myndi ekki þora að gera það aftur við hættu á að bardagafiskurinn ráðist á hina en ertu s.s. að meina hvort það sé í lagi að hafa slæðusporð og venjulegan saman??
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

en ég myndi ekki þora að gera það aftur við hættu á að bardagafiskurinn ráðist á hina
hvaðan fá allir þessar upplýsingar um það að bardagafiskar séu árásagjarnir :? ??
Þeir eru aðalega árásagjarnir á sína eigin tegund, þeir eru það hægir að þeir eiga ekki auðvelt með að ná hvaða fisk sem er
Það er þá helst að þeir reyni að narta í sporða, t.d. hjá gubbyköllum
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég var nú með bardagakarl í búri með öðrum fiskum, og einn daginn þegar ég kom heim vantaði í sporðinn á flestum. En bardagafiskurinn var í lagi.. Einn fiskurinn er með sporð sem er svona > í laginu núna.. með gati í miðjunni :P

En annars held ég að ég sé búin að ná því hvernig gullfiskar virka, ekki of heitt vatn, gefa að borða.. Ekki flókið :P
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Nei þetta er nefninlega ekkert flókið með gullfiskana :wink:

En eru bardagafiskarnir ekki svona árásargjarnir??
Hélt það alltaf en þá er það bara vitleysa í mér :P :oops: :wink:
Er sko að pæla í að fá kannski tvo gullfiska og bardagafisk aftur :D
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

nafnið er villandi
þeir geta nartað í sporða eins og ég sagði hér fyrir ofan en þeir er oftar en ekki friðsamir
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Ok en hvaða fiska er hægt að hafa með bardagafisk??
Eins og ég sagði var ég með bardagakall og 3 gullfiska í 10L búri og það gekk bara mjög vel :)
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Vargur wrote:Bardagafiskar geta verið með flestum minni og friðsamari fiskum.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Kaja wrote:Ok en hvaða fiska er hægt að hafa með bardagafisk??
Eins og ég sagði var ég með bardagakall og 3 gullfiska í 10L búri og það gekk bara mjög vel :)
En er 10 L búr ekki alltof lítið fyrir þennan fjölda af fiskum?
Systir mín er með 2 gullfiska og eina ryksugu í um 30 L búri og finnst mér fiskarnir ekki mega vera fleiri.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jú þetta er í meira lagi... Næstum vonlaust að halda vatnsgæðum góðum og þá fara fiskarnir að veikjast og svona vesen.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Ég var að fá mér bardaga fisk um dagin og það gengur allt vel.. ekkert vesen svo það getur varla verið að þetta séu brjálaðir fiskar... mjög rólegir og slakir :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Post Reply