Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
lipurta
Posts: 47
Joined: 02 Nov 2011, 17:06

Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by lipurta »

Tók eftir því í seiðabúrinu mínu að það vantaði nokkra snigla í skelina sína. Er að velta því fyrir mér hvort þessi 3 mánaða kribbaseiði (pulcher kribensis) éta ca. 4 vikna snigla ? :)
- Sóley

Eins og er ..
20l . skrautbúr

Never give up
When the sun goes down,
the stars come out
lipurta
Posts: 47
Joined: 02 Nov 2011, 17:06

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by lipurta »

er enginn sem getur svarað þessu ? :)
- Sóley

Eins og er ..
20l . skrautbúr

Never give up
When the sun goes down,
the stars come out
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Sibbi »

Sæl.
Ekki veit ég til þess að þeir geri það,, en þeir eiga það til að narta í fálmarana, sérstaklega ef sniglar eru að þvælast að hrognum þeirra eða seiðum, ég er með helling af eplasniglum hjá Kribbapörunum hjá mér, og það hefur verið í besta lagi.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
lipurta
Posts: 47
Joined: 02 Nov 2011, 17:06

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by lipurta »

Sibbi wrote:Sæl.

Nú okei , ætli mínir kribbar séu ekki sólgnari í snigla. Gómaði seiðin við að borða einn snigilinn , þetta eru reyndar litlir sniglar og tæplega 1 cm á lengt/breidd :) ekkert nema tómar skeljar í búrinu núna því miður.
- Sóley

Eins og er ..
20l . skrautbúr

Never give up
When the sun goes down,
the stars come out
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Sibbi »

"Allir"fiskar éta sniglana ef dauðir eru.
Ekki ósennilegt að þessir þessir sniglar hafi "ógnað" hryggningarstaðnum og Kribbarnir hafi nartað í þá, þá drepast þeir fljólega einhverstaðar í búrinu, síðan éta þeir og seiðin þá.

Er þetta í 85 lítra búrinu, ég er með fullt af sniglum í bæði minni og stærri búrum með Kribbapörum, sem öll eru með seiðum, en þetta eru allt stórir sniglar.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
lipurta
Posts: 47
Joined: 02 Nov 2011, 17:06

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by lipurta »

Sibbi wrote:"Allir"fiskar éta sniglana ef dauðir eru.

Ég er með annað 85 L búr sem ég setti aðeins þessi seiði og sniglana úti , svo er ég enn með nokkra snigla í búrinu þar sem kribbarnir hrygna en þeir virðast alveg fá að vera í friði en þar eru um 3 vikna seiði.
- Sóley

Eins og er ..
20l . skrautbúr

Never give up
When the sun goes down,
the stars come out
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Sibbi »

lipurta wrote:

Ég er með bæði miðlungs og eins stóra snigla hjá hjúddds stórum Kribbum, og þar er enginn drepinn, lifa í sátt og samlindi.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Elma »

kribbarnir gætu hafa angrað sniglana til dauða.
Þá narta þeir í þá, t.d í fálmarana og sniglarnir þola
það ekki til lengdar og drepast.
Svo éta kribbarnir sniglana þegar þeir drepast og hinir sniglarnir
sem eru í búrinu.
Ættir að sjá það á sniglunum, ef þeir eru með fálmarana úti þá er enginn að angra þá.
Ef þeir halda fálmurunum inni og/eða halda sig lokuðum inn í skelinni, þá er einhver að angra þá.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Sibbi »

lipurta, þér er velkomið að koma og skoða nokkur búr hjá mér með Kribbum og eplasniglum, þá sérðu þetta sem Elma er að tala um með fálmarana,,, en þú munt ekki sjá neina dauða snigla.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Vargur »

lipurta wrote:
Nú okei , ætli mínir kribbar séu ekki sólgnari í snigla. Gómaði seiðin við að borða einn snigilinn .
Hefur þú sett salt í búrið ?
lipurta
Posts: 47
Joined: 02 Nov 2011, 17:06

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by lipurta »

Vargur wrote:
lipurta wrote:
Nú okei , ætli mínir kribbar séu ekki sólgnari í snigla. Gómaði seiðin við að borða einn snigilinn .
Hefur þú sett salt í búrið ?
Ekki í þetta seiðabúr nei :) en hvað gerist samt ef það er sett salt í búrið ?
- Sóley

Eins og er ..
20l . skrautbúr

Never give up
When the sun goes down,
the stars come out
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by Vargur »

Flestir sniglar þola illa salt.
Hvaða snigla ert þú með ?
lipurta
Posts: 47
Joined: 02 Nov 2011, 17:06

Re: Borða Kribbar (kribensis) eplasnigla ?

Post by lipurta »

Vargur wrote:Flestir sniglar þola illa salt.
Hvaða snigla ert þú með ?
eplasnigla , og fullt af þeim. Er með þá í tetrubúrinu , þeir eru til sölu.
- Sóley

Eins og er ..
20l . skrautbúr

Never give up
When the sun goes down,
the stars come out
Post Reply