Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by jrh85 »

Afríski lungnafiskurinn hjá mér er orðinn eitthvað slappur. Hann var í búri með 2 stærri polypterus ornatipinnis og þeir voru eitthvað að narta í uggana á honum svo ég færði hann í minna búr.

Það byrjaði fljótt að koma hvít í uggana og nú er það byrjað að fara í fálmana á honum líka. Mér langaði að spyrja hvað þetta gæti verið, mér datt fyrst í hug bara einhver sýking frá sárum og er búinn að skipta um vatn og salta.

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by ulli »

Er þetta ekki bara fúngus?
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by jrh85 »

ulli wrote:Er þetta ekki bara fúngus?
Grunar að sterklega að það sé rétt hjá þér. er búinn að kaupa lyf við þessu og salta en þetta er þrálátur andskoti. Og núna sýnist mér Endlicheri vera að fá snefil af þessu líka eftir að ég færði hann um búr :(
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by ulli »

Passa Vatns gæðinn :wink:
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by jrh85 »

jamm, takk. Endlicheri er alla vega ekki kominn með sveppi.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by Elma »

hefur hann verið að nudda sér upp við eitthvað?
liggjandi upp við hitarann eða eitthvað slíkt
sem gæti hafa valdið þessu?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by jrh85 »

Elma wrote:hefur hann verið að nudda sér upp við eitthvað?
liggjandi upp við hitarann eða eitthvað slíkt
sem gæti hafa valdið þessu?
það stendur reyndar efst í póstinum afhverju þetta kom. En það er enginn hitari í búrinu sem hann var í þegar þetta kom.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by Elma »

já ég sá það.
Var bara að spá hvort það hafi eitthvað
sem triggeraði þá í að fara að narta í hann,
hvort hann hafi fengið sár og þeir þá byrjað að narta í hann.
Eða þeir bara orðnir svangir hjá þér og þeir byrjað að
narta í hann.
Eða hann hafi verið eitthvað slappur fyrir og þeir hafi vitað það og
byrjað að narta í hann.
En það skiptir svo sem ekki miklu máli.
ég er bara að spá í þessu.
Með góðu vatni ætti þetta að fara.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Re: Afrískur lungnafiskur eitthvað veikur

Post by jrh85 »

ég held að lungnafiskurinn hafi bara verið fyrir þeim. hann er svo dööö eitthvað. hann er alltaf bara kyrr sama þótt einhver sé að tékka á honum. svo eru polypterusarnir líka dáldið nasty ef þeir komast upp með það.
Post Reply