Þekkir þú þennan fisk?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Þekkir þú þennan fisk?

Post by Sibbi »

Fyrir tæpu ári keypti ég tvo fiska, sem er svo sem ekki merkilegt, viku síðar hvurfu fiskarnir, og hef ég ALDREI séð þá síðan, fyrr en í kvöld, þá sá annað kvikindið, orðinn líka svona svaka pattaralegur, og flottur maður, ekkert smá, en vandamálið er að ég hef ekki hugmynd um hvað þessi fiskur heitir, en langar til.
Það er vonlaust að ná myndum af honum, hann er bæði snöggur, og felur sig inn í steinahrúgu, og rétt rekur trýnið út, sérstaklega ef fiskur er eitthvað að kroppa í kring.
Allir uggar og fálmarar eru mjallhvítir, fiskurinn grábrúnleytur, fallega grábrúnleytur (ef sá litur er þá til).
Hér eru þær myndir sem ég náði,,,,,,,, á einni og hálfri klukkustund :evil:

Image
Image
Image
Image
Image
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Jakob »

Þessi heitir Synodontis petricola. Kattfiskur sem kemur frá Tanganyika. Hann getur orðið um 13cm.

http://www.planetcatfish.com/catelog/_s ... ies_id=857
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Sibbi »

Mikið rétt Jakop, þetta er kvikindið.
Það er sama hvers maður spyr hér á spjallinu, takk fyrir þetta Jakop.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by keli »

Myndirnar virka ekki hjá mér...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Jakob »

Virkilega skemmtilegir kattfiskar, er sjálfur með Synodontis, líklega af tegundinni Atterimus eða blendingur. Hann er um 18cm og á það til að vera ótrúlega aggressívur, annars skemmtilegur fiskur.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Sibbi »

Já, ég saknaði þeirra mikið, voru bara það dýrir að ég tímdi ekki að kaupa nýja eftir að þeir hvurfu, en var himinnlifandi þegar ég uppgötvaði núna tæpu ári síðar að allavega annar er á lífi, og svona líka pattaralegur og flottur, ætla að ná mér í svona 2 í viðbót :)

En eftir að þú komst með nafnið sá ég að það eru nokkrar tegundir nokkuð líkar, og held ég að ég sé með Cuckoo Catfish, Synodontis multipunctatus.
Image
Image
Image
Myndir teknar af þessari síðu> http://www.destin-tanganyika.com/Galeri ... -dwarf.htm

Meyra hægt að fræðast um hann hér> http://scienceblogs.com/grrlscientist/2 ... odonti.php

Allavega skíri ég hann þennan þar til þú eða einhver fróður sér minn og segir annað :P
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
casmak
Posts: 75
Joined: 03 May 2011, 09:24
Location: Hafnarfjörður

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by casmak »

mér sýnist á myndunum að þetta sé ekki Synodontis multipunctatus ég er með svoleiðis 10 cm og hann er ekki með jafn hvítar útlínur. Ég pantaði 2 svona eins og þú ert að vitna í minnir að það hafi verið Synodontis petricola en þeir drápust hjá mér fljótlega, mín mistök en allavega þetta er minn Synodontis multipunctatus "Cuckoo Catfish"
Image
4x200l Rekki.
180l ónotað
Canon EOS 500D EF-S 18-55mm

viewtopic.php?f=2&t=12580
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Sibbi »

Já ok, það getur alveg verið að þetta sé misskilningur, en þessi á myndunum er eins og minn, og hann ber þetta nafn samkvæmt fl. síðum, en það kemur bara í ljós.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Vargur »

Alvöru petricola eru vanalega villt veiddir og kosta hönd og fót.
Margir þessir Synodontis eru hormónaræktaðir blendingar og erfitt að greina tegundir en petricola á að vera með fagurhvíta rönd á öllum uggum, síðustu ár hafa verið í umferð ódýrir multipunctatus/petricola blendingar sem eru með mikið hvíta ugga og ekki ólíklegt að þetta sé svoleiðis fiskur, þessum fiskum er oft ruglað við petricola viljandi og óviljandi.
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Þekkir þú þennan fisk?

Post by Sibbi »

Vargur wrote:Alvöru petricola eru vanalega villt veiddir og kosta hönd og fót.
Margir þessir Synodontis eru hormónaræktaðir blendingar og erfitt að greina tegundir en petricola á að vera með fagurhvíta rönd á öllum uggum, síðustu ár hafa verið í umferð ódýrir multipunctatus/petricola blendingar sem eru með mikið hvíta ugga og ekki ólíklegt að þetta sé svoleiðis fiskur, þessum fiskum er oft ruglað við petricola viljandi og óviljandi.
Ok, þá er sem sagt líkur á að minn sé ekta :-) , því þessir hlutar eru skjannahvítir á fisknum hjá mér.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Post Reply