Dísa skvísa labrador

Hér er fjallað um öll dýr önnur en fiska

Moderators: Elma, Vargur

User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Dísa skvísa labrador

Post by Andri Pogo »

Fattaði þegar ég sá hvolpinn hans Guðmundar að ég var ekki búinn að setja inn mynd af okkar.

Dísa er Labrador, 18 vikna gömul, fengum hana 8 vikna... búin að stækka svakalega en það er nóg eftir :)

þegar við fengum hana:
Image

Image

aðeins nýrri:
Image

Image

Image

sést hérna hvað hún hefur stækkað á 2 mánuðum:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Svaka svkísa, labbar eru bara bestir :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Agnes Helga wrote:Svaka svkísa, labbar eru bara bestir :D
Sætur hundur. Labbar eru fínir , en sheffer eru bara lang bestir :P
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ótrúlega falleg.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fallegur Labrador.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Bambusrækjan wrote:
Agnes Helga wrote:Svaka svkísa, labbar eru bara bestir :D
Sætur hundur. Labbar eru fínir , en sheffer eru bara lang bestir :P
öllum finnst "sín" tegund best :wink: Shafer eru líka bara æðislegir :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
KarenThöll
Posts: 62
Joined: 28 Dec 2009, 21:10

:D

Post by KarenThöll »

Rosa flottur Hundur
Og það finnst eiginlega öllum hunda tegundin sín flottust
Og mér finnst Hundategundin mín flottust Parson Russel Terrier
Sheffer og labradorar eru líka rosa flott og góð tegund
TobbiHJ
Posts: 39
Joined: 01 Sep 2009, 09:42
Location: Reykjavík

Post by TobbiHJ »

Gullfallegur hundur, rakst á Andra og hvolp í dýrabúð fyrir stuttu. Til hamingju með þennan! :)
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

Andri hvað borgaðiru fyrir svona fallega tík?
Rena Biocube 50: tómt eins og er
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

80.000kr, ættbókarlaus
-Andri
695-4495

Image
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

já sæll.....
Rena Biocube 50: tómt eins og er
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Post by MaggaN »

Andri Pogo wrote:80.000kr, ættbókarlaus
Afleit kaup...

Ég hef ekki mikið vit á fiskum en ég veit ýmislegt um hunda. Þegar "hreinræktaðir" hvolpar eru ekki með ættbók er yfirleitt einhver maðkur í mysunni. Sennilega eru foreldrarnir ekki mjaðmamyndaðir eða ekki alveg hreinræktaðir, sennilega bæði.

Passaðu vel að hún verði ekki of feit (mér sýnist hún vera í fínum holdum á nýjustu myndunum) því það eykur álagið á liðina og er talið geta ýtt undir mjaðmalos, þó það sé fyrst og fremst arfgengt ástand. Mjaðmalos er afar kvalafullt ef það er mikið. Vonandi verður hvolpurinn þinn heilbrigður og langlífur. Gangi þér vel.
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Ég keypti nú einu sinni ættbókfærðan sheffer , undan verðlaunahundum. Minn fyrsti hundur reyndar. Hann greindist síðar með mjaðmalos á háu stigi.

Seinna tók ég við sheffer með enga ættbók, frá löggunni ( hann var tekin af einhverjum glæpamanni sem hvolpur )sem reyndist alla tíð hraustur. Sá var reyndar alla tíð erfiður í skapi.

Þannig að ættbók er ekkert endilega samansem merki á heilsuhreysti.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

MaggaN wrote:
Andri Pogo wrote:80.000kr, ættbókarlaus
Afleit kaup...

Ég hef ekki mikið vit á fiskum en ég veit ýmislegt um hunda. Þegar "hreinræktaðir" hvolpar eru ekki með ættbók er yfirleitt einhver maðkur í mysunni. Sennilega eru foreldrarnir ekki mjaðmamyndaðir eða ekki alveg hreinræktaðir, sennilega bæði.

Passaðu vel að hún verði ekki of feit (mér sýnist hún vera í fínum holdum á nýjustu myndunum) því það eykur álagið á liðina og er talið geta ýtt undir mjaðmalos, þó það sé fyrst og fremst arfgengt ástand. Mjaðmalos er afar kvalafullt ef það er mikið. Vonandi verður hvolpurinn þinn heilbrigður og langlífur. Gangi þér vel.
Þetta er nú bara ca verðið á Labrador án ættbókar, með ættbók er það í kringum 200þ. Það er alltaf eitthvað um að labrador séu seldir án ættbókar en það er samt ekkert gefins enda mikil eftirspurn.
Fólk getur vel haft misjafnar skoðanir á því en mér finnst þetta nú allt annað en afleit kaup :)
Við vorum að skoða þetta aðeins áður en við ákváðum að taka Dísu og vorum að spá í ættbókarhundi en ákváðum að taka hana því þetta er "bara" gæludýr en ekki ætluð í sýningar eða áframhaldandi ræktun.
Fyrir utan að við vorum ekki með 200þ í vasanum og fundum ekkert væntanlegt got.
Pabbinn er með ættbók, mamman er hinsvegar ekki með ættbók því aðeins annað foreldrið hennar var með ættbók, en ég hef enga trú á að hún sé ekki hreinræktuð.
Hún er annars í grennri kantinum, erum að vigta matinn ofaní hana.
-Andri
695-4495

Image
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Er virkilega þetta snobb í hundunum ?
ættbókarfærðir hundar ?
er þetta ekki komið út í algert rugl ?
engin af þessum hundategundum er til í náttúrunni
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

ég hringdi í gaur áðann hann vildi 100 þús fyrir ættbókalausann svartan labrador........
Rena Biocube 50: tómt eins og er
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Andri Pogo wrote:
MaggaN wrote:
Andri Pogo wrote:80.000kr, ættbókarlaus
Afleit kaup...

Ég hef ekki mikið vit á fiskum en ég veit ýmislegt um hunda. Þegar "hreinræktaðir" hvolpar eru ekki með ættbók er yfirleitt einhver maðkur í mysunni. Sennilega eru foreldrarnir ekki mjaðmamyndaðir eða ekki alveg hreinræktaðir, sennilega bæði.

Passaðu vel að hún verði ekki of feit (mér sýnist hún vera í fínum holdum á nýjustu myndunum) því það eykur álagið á liðina og er talið geta ýtt undir mjaðmalos, þó það sé fyrst og fremst arfgengt ástand. Mjaðmalos er afar kvalafullt ef það er mikið. Vonandi verður hvolpurinn þinn heilbrigður og langlífur. Gangi þér vel.
Þetta er nú bara ca verðið á Labrador án ættbókar, með ættbók er það í kringum 200þ. Það er alltaf eitthvað um að labrador séu seldir án ættbókar en það er samt ekkert gefins enda mikil eftirspurn.
Fólk getur vel haft misjafnar skoðanir á því en mér finnst þetta nú allt annað en afleit kaup :)
Við vorum að skoða þetta aðeins áður en við ákváðum að taka Dísu og vorum að spá í ættbókarhundi en ákváðum að taka hana því þetta er "bara" gæludýr en ekki ætluð í sýningar eða áframhaldandi ræktun.
Fyrir utan að við vorum ekki með 200þ í vasanum og fundum ekkert væntanlegt got.
Pabbinn er með ættbók, mamman er hinsvegar ekki með ættbók því aðeins annað foreldrið hennar var með ættbók, en ég hef enga trú á að hún sé ekki hreinræktuð.
Hún er annars í grennri kantinum, erum að vigta matinn ofaní hana.
Þessi orð koma frá móður minni, fyrrverandi starfsmanns Hundaræktenda félags Íslands og fyrrverandi hundaræktanda.
"Þetta eru víst ekki það góð kaup, verðið á ættbókarlausum labrador er um 50-60Þ, en persónulega mundi ég ekki borga neitt fyrir ættbókarlausann Labrador.
Þegar hundar eru ættbókarlausir eru þeir yfirleitt (í 90% tilvikum) blandaðir og þess vegna hafa þeir ekki ættbók.
Maður getur sjaldan treyst blönduðum hundum. Þeir geta ALLTAF tekið skapsveiflur sama hversu ljúfir þeir eru eða virðast vera í æsku."

Gangi þér samt vel með hann.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Meira ruglið í þessum póstum hérna :), þótt hundurinn sé ekki með ættbók er þetta fínasta gæludýr og ef rétt upp alin verður þessi tík ekkert síðri en hver annar hundur með ættbók

Er búinn að eiga 2 hunda sem eru blandaðir og allt of marga sem eru hreinræktaðir og allir hafa reynst yndislegir hundar

ef ekki er ætlun á að rækta eða sýna hundinn er enginn tilgangur að hafa ættbók

Til hamingju með hundinn Andri
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Gudmundur wrote:Er virkilega þetta snobb í hundunum ?
ættbókarfærðir hundar ?
er þetta ekki komið út í algert rugl ?
engin af þessum hundategundum er til í náttúrunni
Ekki er þetta bara snobb. Flestar tegundir hafa ákveðin einkenni og hegðunarmynstur. Þó svo að einstaklingarnir séu mismunandi innan hverrar tegundar. Þannig að ef þú kaupir hreinræktaðan hund , þá veistu nokkurn vegin hvað þú ert að fá. En með blending er maður svoldið að ana út í óvissuna , þó svo að þetta séu auðvitað allt saman hundar og góðir félagar. T.d ef maður hefur gaman að veiða þá væri sniðgugt að fá einhverra tegund af veiðihundi. Þar sem ákveðin einkenni hafa verið ræktuð upp í tegundinni , stundum í hundruði ára. Og myndi þar með gera þjálfun hundsins mun auðveldari.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ég er nú meira að meina að ef hundurinn er af einni tegund td. labrador þá finnst mér ekki skifta hvort það fylgi honum eitthvað plagg heldur hvort hundurinn sé gott eintak
Skil ekki að ættbók geri slæman hund betri
og góðan hund án ættbókar verri
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Eins og ég sagði þá hef ég átt bæði óættbókfærðan sheffer og ættbókfærðan. Og var sá ættbókarfærði heisluveilli en hinn. En af sjálfsögðu voru þetta báðir frábærir hundar og góðir vinir mínir og með öll helstu einkenni tegundarinnar.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jæjajæjajæja :)

varðandi verðið; er rétt verð ekki bara það sem fólk er tilbúið að borga?
þessir hundar eru oftast að fara á meira en 50-60þ og meðan eftirspurnin er mikil og fólk er tilbúið að borga aðeins meira hlítur það að vera rétta verðið þessu sinni.

Það verður svo bara að koma í ljós hversu góð kaup hún er en hingað til er hún hverrar krónu virði. Hún hefur fengið mörg hrós, t.d. á hvolpanámskeiði HRFÍ.
Við fórum að skoða gotið nokkrum sinnum áður en við tókum hana, en allir hundarnir voru mjög fallegir, aldir upp á fjölskylduheimili og okkur fannst það skipta meira máli en að finna þann ódýrasta.

Við vorum líka að velta fyrir okkur enskum bolabít áður en við ákváðum Labrador en þá hefðum við auðvitað tekið hvolp með ættbók undan heilbrigðum og mynduðum foreldrum enda miklu miklu heilsuminni tegund.
En það er svosem hægt að rökræða þetta fram og til baka en er þetta ekki bara komið gott í bili :)
-Andri
695-4495

Image
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Post by MaggaN »

Blendingar eru oftast heilsuhraustir og oft fyrirtaks gæludýr og félagar. Hreinræktaðir hundar eru ekkert betri og alls ekki heilsuhraustari, þvert á móti eru meiri líku á ýmsum arfgengum sjúkdómum, þar sem erfðafræðilegur fjölbreytileiki þeirra er minni og flestir eru þónokkuð skyldir ef grant er skoðað.

Þú ert bara ekki að fá þér blending. Þú ert að fá þér hund sem hefur "það versta úr báðum heimum", s.s. lítið genamengi hreinræktaðra hunda og engan metnað góðrar hreinræktunar. Metnaðarfullir labradorræktendur mjaðmamynda hundana sína. Það gera þeir ekki af því að þeir séu svo "snobbaðir", heldur af því að mjaðmalos er MJÖG algengt í þessari tegund. Ég hefði frekar keypt mér ALVÖRU blending en ekki svona "hálfsnobbs-hund"...

Ég vona innilega að þinn hundur verði heppinn og fái ekki öll "vondu genin" því þau spyrja ekki um neina pappíra...

Guðmundur: Það eru vissulega til nokkrar hundategundir úti í náttúrunni; Basenji er upphaflega afrískur villihundur (þó ég viti ekki hvort þeir finnist enn villtir einhversstaðar). New Guinea Singing dog finnst líka villtur. Canaan dog er villihundur líka og auðvitað sá frægasti, Dingóinn í Ástralíu. Ég sé samt ekki hvað það kemur málinu við...

Labrador er þaulræktuð tegund, sem á t.d ekki að vera skothræddur, hann á að geta haldið á hráu eggi í kjaftinum án þess að brjóta það, hann á að vera syndur eins og selur og þola að synda í gríðarlega köldu vatni allan daginn án vandkvæða. Hann á að vera taugasterkur og hafa það gott minni að hann geta lagt á minnið hvar fuglarnir lentu áður en hann er sendur eftir þeim og muna hversu margir fuglar féllu svo enginn verði eftir. Hann á að hafa einbeitingu til að takast á við erfið verkefni eins og að aðstoða blinda og hreyfihamlaða. Þú tækir ekki villtan hund eða einhvern blending og gerðir svona kröfur, er það?

Til að fá allt þetta fram hefur verið beytt áhrifaríkustu aðferðum ræktunar, þ.e. valræktun og skyldleikaræktun. Það ferli er ekki gallalaust og það er nauðsynlegt að fylgjast vel með öllum þeim arfgegnu sjúkdómum sem geta leynst í ættunum, svo minni líkur séu á að hundur fái sömu gölluðu genin úr báðum ættum og þá augljóslega meiri líkur á að erfa viðkomandi sjúkdóm. Þetta væri vitaskuld ómögulegt ef ekki væri nákvæmlega skráð hver eignast hvaða hvolp. Það er ættbókarskráning. Finnst þér þetta snobb?

Ég er sjálf á móti ræktun sem gerir hunda óheilbrigða og háða manninum, t.d. þegar kemur að því að fjölga sér. Ég nefni t.d. tegundir eins og Bulldog, Pug, Pekingese, Dachshund... listinn er langur.
Ég er reyndar líka á móti þesslags ræktun á öllum dýrategundum, þar á meðal fiskum. Ég þoli ekki tegundir eins og baloon molly og bubble eye gullfiska og tegundir sem hafa orðið svo mikið "slör" að þeir geta varla synt og, í tilfelli gotfiska, ekki fjölgað sér án aðstoðar.

Enn og aftur, vonandi verður hundurinn þinn góður og heilbrigður labrador. Pappírarnir myndu ekki gera hann neitt betri félaga, þú myndir bara hafa möguleikann á að skoða hvað þú værir með í höndunum. Þekkirðu fólkið sem seldi þér hundinn? Það er eflaust einhver ástæða fyrir því að amma hvolpanna fékk ekki ættbók. Vonandi ekki heilbrigðisástæður.

Gangi þér vel.
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Post by MaggaN »

Sorrý, var að skrifa þessa doktorsritgerð og sá ekki innleggið þitt um að nóg væri komið af rökræðum. Ég elska rökræður en skal láta hér við sitja.

Til hamingju með hundinn, gaman að það gangi svona vel með hann :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Mér líst ekkert á þessi kaup, kvikindið gelti á mig þegar ég kom í heimsókn. :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hehe já henni hefur fundist þú eitthvað skuggalegur :mrgreen:
hún hefur annars aldrei gelt svona á manneskju áður, lætur í mesta lagi vita með einu gelti ef einhver er við hurðina.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

Post by Einval »

Greinilega mjög vitur hundur :lol:
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

Til hamngju með hana :) (vá hvað mér finnst sjálfum leiðinlegt hvað menn eru búnir að skrifa illa um þessi kaup)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

Post by Einval »

MaggaN wrote:Blendingar eru oftast heilsuhraustir og oft fyrirtaks gæludýr og félagar. Hreinræktaðir hundar eru ekkert betri og alls ekki heilsuhraustari, þvert á móti eru meiri líku á ýmsum arfgengum sjúkdómum, þar sem erfðafræðilegur fjölbreytileiki þeirra er minni og flestir eru þónokkuð skyldir ef grant er skoðað.

Þú ert bara ekki að fá þér blending. Þú ert að fá þér hund sem hefur "það versta úr báðum heimum", s.s. lítið genamengi hreinræktaðra hunda og engan metnað góðrar hreinræktunar. Metnaðarfullir labradorræktendur mjaðmamynda hundana sína. Það gera þeir ekki af því að þeir séu svo "snobbaðir", heldur af því að mjaðmalos er MJÖG algengt í þessari tegund. Ég hefði frekar keypt mér ALVÖRU blending en ekki svona "hálfsnobbs-hund"...

Ég vona innilega að þinn hundur verði heppinn og fái ekki öll "vondu genin" því þau spyrja ekki um neina pappíra...

Guðmundur: Það eru vissulega til nokkrar hundategundir úti í náttúrunni; Basenji er upphaflega afrískur villihundur (þó ég viti ekki hvort þeir finnist enn villtir einhversstaðar). New Guinea Singing dog finnst líka villtur. Canaan dog er villihundur líka og auðvitað sá frægasti, Dingóinn í Ástralíu. Ég sé samt ekki hvað það kemur málinu við...

Labrador er þaulræktuð tegund, sem á t.d ekki að vera skothræddur, hann á að geta haldið á hráu eggi í kjaftinum án þess að brjóta það, hann á að vera syndur eins og selur og þola að synda í gríðarlega köldu vatni allan daginn án vandkvæða. Hann á að vera taugasterkur og hafa það gott minni að hann geta lagt á minnið hvar fuglarnir lentu áður en hann er sendur eftir þeim og muna hversu margir fuglar féllu svo enginn verði eftir. Hann á að hafa einbeitingu til að takast á við erfið verkefni eins og að aðstoða blinda og hreyfihamlaða. Þú tækir ekki villtan hund eða einhvern blending og gerðir svona kröfur, er það?

Til að fá allt þetta fram hefur verið beytt áhrifaríkustu aðferðum ræktunar, þ.e. valræktun og skyldleikaræktun. Það ferli er ekki gallalaust og það er nauðsynlegt að fylgjast vel með öllum þeim arfgegnu sjúkdómum sem geta leynst í ættunum, svo minni líkur séu á að hundur fái sömu gölluðu genin úr báðum ættum og þá augljóslega meiri líkur á að erfa viðkomandi sjúkdóm. Þetta væri vitaskuld ómögulegt ef ekki væri nákvæmlega skráð hver eignast hvaða hvolp. Það er ættbókarskráning. Finnst þér þetta snobb?

Ég er sjálf á móti ræktun sem gerir hunda óheilbrigða og háða manninum, t.d. þegar kemur að því að fjölga sér. Ég nefni t.d. tegundir eins og Bulldog, Pug, Pekingese, Dachshund... listinn er langur.
Ég er reyndar líka á móti þesslags ræktun á öllum dýrategundum, þar á meðal fiskum. Ég þoli ekki tegundir eins og baloon molly og bubble eye gullfiska og tegundir sem hafa orðið svo mikið "slör" að þeir geta varla synt og, í tilfelli gotfiska, ekki fjölgað sér án aðstoðar.

Enn og aftur, vonandi verður hundurinn þinn góður og heilbrigður labrador. Pappírarnir myndu ekki gera hann neitt betri félaga, þú myndir bara hafa möguleikann á að skoða hvað þú værir með í höndunum. Þekkirðu fólkið sem seldi þér hundinn? Það er eflaust einhver ástæða fyrir því að amma hvolpanna fékk ekki ættbók. Vonandi ekki heilbrigðisástæður.

Gangi þér vel.
þetta a heima a barnalandi.is
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Til hamingju með tíkina, hún er mjög falleg. Það er að sjálfsögðu undir sjálfum þér komið hvað tíkin "á að geta gert", það fer ekki eftir neinu öðru en í hvað þú þjálfar hana/"notar" hana..
Post Reply