Kötturinn Bónó

Hér er fjallað um öll dýr önnur en fiska

Moderators: Elma, Vargur

User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Kötturinn Bónó

Post by Jakob »

Fengum okkur þennan fallega högna fyrir 2 mánuðum, hann er um 5 mánaða núna. Hann er mjög mikið á ferðinni í húsinu og fær ekki að fara út, nema bara út á 15fm. svalirnar okkar. Nokkrar myndir af honum að skjótast um húsið á síðustu tveimur mánuðum.
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Vinsamlegast takið tillit til þess að áherslan á myndunum er ekki fókusinn, skemmtilegar engu síður.
Last edited by Jakob on 28 May 2009, 23:36, edited 1 time in total.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hahahaha, skemmtilegur köttur. Mjög flottur.
Annars verð ég að segja að mér finnst næst síðasta myndin er alls ekki spennandi :P
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hann er æðislegur, það á að gelda hann á morgun, svo hann róast nú eitthvað.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
bibbinn
Posts: 156
Joined: 19 Feb 2008, 21:30
Location: brh

Post by bibbinn »

vá hann er ekkert smá hress og fallegur heh :wink:
kv. Brynjar
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

köttur

Post by malawi feðgar »

hann er virkilega fallegur á litinn.
sammála lindured með næst síðustu myndina.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fixed, þessi mynd átti ekki að vera þarna.
Ný mynd af honum.
Image
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Bónó? Fer hann í fýlu ef þið endurvinnið ekki pappír og plast? ;D
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hef ekki prófað það, en ég efast um að nafnið hafi áhrif á það.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Nokkrar nýlegar.
Image
Image
Image
Image

Við erum búin að gelda hann og hann varð eðlilega töluvert rólegri.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Hehe.. Kisur eru svo miklir karakterar. Sposkur á svip á fyrstu myndinni, og gott ef vottar ekki fyrir örlítilli hægðatregðu í svipnum á síðustu myndinni :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já, hann er skemmtilegur, ég skal reyna að ná vídeói af honum á morgun. Og henda því upp annað kveld.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

virkilega fallegur köttur og flotta actionmyndir!
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Tvær nýjar myndir.
Image
Image
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Myndir frá því í gærkvöldi. Honum finnst búrið hrikalega spennandi.
Image
Image
Image

Ég var að skoða myndirnar efst í þræðinum, hann hefur breyst ekkert smá síðan þá. Daglega rútínan hjá honum er að borða, éta, fara út, sofa.
En hann er farinn að éta rosalega, hvað er eðlilegt fyrir 9-10 mánaða högna að éta mikið á dag (í grömmum). Ég skutlaðist út í bónus við opnun síðastliðin sunnudag og skellti 400g. dollu af Whiskars blautfóðri í dallinn hans(hann borðar aðallega þurrfóður samt) og dallurinn var tómur um tíu leitið að kvöldi. Er væntanlega ekki alveg jafn spennur fyrir þurrfóðrinu en étur samt mjög mikið af því.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það borgar sig ekki að skilja eftir mat hjá köttum. 2 matartímar á dag, og ef hann étur það ekki innan ca 30-60mín þá er það tekið frá honum. Svo er mikilvægt að fara eftir skammtastærðunum sem eru utan á pokunum. Ef hann fær meira þá er það áskrift á of feitan kött.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

keli wrote:Það borgar sig ekki að skilja eftir mat hjá köttum. 2 matartímar á dag, og ef hann étur það ekki innan ca 30-60mín þá er það tekið frá honum. Svo er mikilvægt að fara eftir skammtastærðunum sem eru utan á pokunum. Ef hann fær meira þá er það áskrift á of feitan kött.
Ég sé ekki afhverju það er verra að hafa köttinn feitan?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

meiri líkur á hjartavandamálum t.d.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:
keli wrote:Það borgar sig ekki að skilja eftir mat hjá köttum. 2 matartímar á dag, og ef hann étur það ekki innan ca 30-60mín þá er það tekið frá honum. Svo er mikilvægt að fara eftir skammtastærðunum sem eru utan á pokunum. Ef hann fær meira þá er það áskrift á of feitan kött.
Ég sé ekki afhverju það er verra að hafa köttinn feitan?
Af mörgum af sömu ástæðum og með mannfólk. Meiri líkur á ýmsum sjúkdómum, t.d. hjartasjúkdómum, sykursýki o.fl. Lífaldurinn og lífsgæði minnka til muna og svo mætti lengi telja.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

hehe ég veit um konu sem er alltof "góð" við kettina sína..Fiskur á hverju kvöldi blautmatur oft á dag og þurrfó'ur allan daginn... þeir eru 8 kíló hvor!!!
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já hann er búin að breytast og stækka svakalega.

Svo mæli ég ekki með Whiskas :P
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Takk fyrir þetta keli og Andri.
Takk Elma, afhverju ekki Whiskas?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:Takk fyrir þetta keli og Andri.
Takk Elma, afhverju ekki Whiskas?
Whiskas þykir frekar lélegur matur... Dýralæknar skiptast venjulega á að mæla með royal canin, techni-cal og einhver einn annar sem ég man ekki hvað heitir.

Það er ótrúlegt hvað það hefur mikil áhrif á feldinn og lykt af dýrum með því að gefa þeim einungis fancy mat :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já, kannski við prófum Royal Canin, það er bara svo helvíti dýrt.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

ég nota íslenska þurrmatinn fyrir mína ketti og eru þeir mjög góðir á feldin, fæst í bónus og er ódýr.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

ég nota líka íslenska.
kristinn.
-----------
215l
User avatar
Hebbi
Posts: 115
Joined: 05 Aug 2009, 18:43
Location: Mosó
Contact:

Post by Hebbi »

ég nota lika islenska bónus matinn fyrir mína ketti, og einn hundinn minn líka
this is mine..
20L
30L
páfagaukar, hundar og kettir....
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það er orðið rosa sport hjá honum núna að veiða mýs, koma með þær lifandi inn í hús og leika sér smá að þeim, annars bara láta þær vera og hafa auga með þeim. Hendi inn vídeó seinna en þetta hefur þótt gaman á heimilinu.
Mynd:
Image
400L Ameríkusíkliður o.fl.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

ég hef einmitt lent í þessu sama læðan mín kom reglulega með mýs inn og sleppti þeim alveg hrikalega glöð að færa okkur björg í bú :-)
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

kisan mín er líka að koma með mýs, en bara dauðar mýs, henni finnst örugglega mannfólkið of klunnalegt til að ná músunum ef þær eru lifandi,
þannig að hún drepur þær og færir okkur, sem við hendum samviskusamlega í ruslið.. en bara þegar kisa sér ekki til, svo hún verði ekki sár út í okkur :-)
Kötturinn minn hefur líka reynt að hremma rjúpu! Algjör veiðikló. :lol:

Er kisinn þinn þá ekkert að drepa mýsnar, kemur bara með þær? Hvað gerir þú svo við þær?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

frænka mín á tvo ketti sem komu með fugl á aðfangadag og héldu honum undir jólatréinu og lékur sér að honum :lol: oog svo var fiður út-um alla íbúð í nokkra daga :roll:
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Post Reply