Search found 31 matches

by Bryndís
19 Jun 2015, 13:11
Forum: Aðstoð
Topic: African-claw frog-smá vandræði
Replies: 3
Views: 12226

Re: African-claw frog-smá vandræði

TAkk fyrir þetta. Við reyndum þetta og ég talaði líka við þá í Fiskó sem gáfu sömu ráð, hreint vatn og 1g.salt per líter. Allt kom fyrir ekki og hann dó blessaður.
by Bryndís
29 May 2015, 21:10
Forum: Aðstoð
Topic: African-claw frog-smá vandræði
Replies: 3
Views: 12226

African-claw frog-smá vandræði

Er með einn lítinn og hressan frosk sem við erum búin að eiga talsverðan tíma.
Núna er eins og hann hafi rispað sig á bakinu, var fyrst örlítil rispa sem nú hefur stækkað og er orðið einskonar sár. Eru einhver ráð til að hjálpa húðinni að endurnýja sig eða gróa.
by Bryndís
25 Nov 2013, 23:37
Forum: Aðstoð
Topic: Sýking í búri_mögulega Costia?
Replies: 6
Views: 8986

Re: Sýking í búri_mögulega Costia?

Ekki deplar og ekki loðnir , veit að þettta er ekki hvítablettaveiki, hef einu sinni fengið hana í búrið. Þær urðu bara alveg hvíta á bringunni og við tálknin. Eins og þær misstu lit og önduðu mjög hratt. Tók ekki mynd af þeim og engin fiskur með sömu einkenni núna í búrinu.
by Bryndís
25 Nov 2013, 20:15
Forum: Aðstoð
Topic: Sýking í búri_mögulega Costia?
Replies: 6
Views: 8986

Re: Sýking í búri_mögulega Costia?

Takk fyrir þetta. Já við gerðum stór vatnsskipti og söltuðum. Hinir eru allir hressir en þessir tveir fóru bara fyrirvaralaust á rúmum sólahring.
Vitið með Ancistruna, þolir hún saltið vel?
En þessi einkenni að verða svona hvítir, veit einhver hvað það er?
by Bryndís
24 Nov 2013, 22:09
Forum: Aðstoð
Topic: Sýking í búri_mögulega Costia?
Replies: 6
Views: 8986

Sýking í búri_mögulega Costia?

Ég er með ársgamalt 54L búr sem hefur verið stapílt nokkuð lengi. Í því voru þar til í dag tveir mollar, ein Ancistra, tvær stórar og vel frískar sverðdragakellur og einn karl sem bættist við fyrir viku. Fóðra 1x á dag, vatnsskipti ca. 40% 1x í viku, engin lifandi gróður, allt bara svona nokkuð norm...
by Bryndís
23 Oct 2013, 15:37
Forum: Til sölu - Óskast keypt
Topic: Tilsölu 2 fiskabúr fást saman á 10þ
Replies: 1
Views: 2835

Re: Tilsölu 2 fiskabúr fást saman á 10þ

Er til í að taka Ferplast búrið á 5000.- Ertu til í það?
by Bryndís
31 Aug 2013, 01:27
Forum: Aðstoð
Topic: Dalmatíu mollie sem er lasin
Replies: 6
Views: 9118

Re: Dalmatíu mollie sem er lasin

Jú, það er líkleg skýring vegna þeirra sem dóu í sumar. En varðandi dalmatíu mollann sem dó núna, þá er mánuður síðan hinir dóu og því ætti búrið að vera orðið stapílt og þess vegna var ég að velta fyrir mér hvað hefði möglega geta komið upp á núna. Líka af því hann hegðaði sé svo undarlega. En það ...
by Bryndís
30 Aug 2013, 23:41
Forum: Aðstoð
Topic: Dalmatíu mollie sem er lasin
Replies: 6
Views: 9118

Re: Dalmatíu mollie sem er lasin

Takk fyrir svarið :-) Búrið er á ganginum fyrir framan svefnherbergin, það er gluggalaust. Við fengum þennan molla í júní og auðvitað veit maður aldrei hvað þeir eru gamlir í búðinni. En hins vegar er þetta annar dalmatíu mollinn sem fer hjá okkur síðan í vor, báðir fengnir úr sömu búð. Hinn dó bara...
by Bryndís
30 Aug 2013, 14:45
Forum: Aðstoð
Topic: Dalmatíu mollie sem er lasin
Replies: 6
Views: 9118

Re: Dalmatíu mollie sem er lasin

Hún er dáin núna greyið. En fróðlegt væri að vita hvað þetta væri ef einhver hefur hugmynd eða kannast við lýsinguna. Í lokin var hún nánast eins og hún gæti ekkert synt, eiginlega eins og hún hafi lamast hægt og rólega.
by Bryndís
28 Aug 2013, 21:34
Forum: Aðstoð
Topic: Dalmatíu mollie sem er lasin
Replies: 6
Views: 9118

Dalmatíu mollie sem er lasin

Við lentum í nokkrum hremmingum í sumar og töpuðum því miður nokkrum fiskum. Við komum heim úr sumarfríi og þá voru 8 tetrur dánar og einn sverðdragi. Búrið var undir eftirliti á meðan við vorum í burtu og viðkomandi hafði verið heima tveimur dögum áður. Líklegasta skýring þótti okkur að einn fiskur...
by Bryndís
10 Jun 2013, 22:34
Forum: Aðstoð
Topic: Java mosi_hvar?
Replies: 0
Views: 2871

Java mosi_hvar?

Hvar mælið þið með því að maður fari og kaupi java mosa??

Taldi mig vera með nokkuð góða felustaði en seiðin mín hafa horfið hratt :-(

kv.Bryndís
by Bryndís
21 May 2013, 09:31
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Já við gerðum það strax, sóttum þau. Minnkuðum kraftinn á dælunni sem er Eheim dæla með ristum á neðri hlutanum og þau virðast hafa synt þar inn. Vorum aðallega að velta fyrir okkur ef þau færu að gera þetta ítrekað, hvort maður ætti þá sífelt að vera að ná í
litlu greyin .-)
by Bryndís
20 May 2013, 20:12
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Bryndís wrote:Eitthvað til að hafa áhyggjur af? Sækja þau, eða koma þau sér út aftur sjálf?

Engin sem veit?
by Bryndís
20 May 2013, 20:12
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Bryndís wrote:Eitthvað til að hafa áhyggjur af? Sækja þau, eða koma þau sér út aftur sjálf?

Engin sem veit?
by Bryndís
19 May 2013, 20:08
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Eitthvað til að hafa áhyggjur af? Sækja þau, eða koma þau sér út aftur sjálf?
by Bryndís
19 May 2013, 19:12
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Ein spurning enn. Nú tókum við eftir því að nokkur af seiðunum voru inni í dælunni (Eheim dæla), sprelllifandi. Einhver lent í því?
by Bryndís
19 May 2013, 13:15
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Takk takk :-)
by Bryndís
19 May 2013, 12:42
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Re: Seiði_lífslíkur

Við erum með sverðdraga og molly. Við teljum að þetta sé molly-seiði. Ekki tilgangurinn að rækta heldur aðallega gaman fyrir krakkana ef nokkur seiði lifa af :-) En fæðið, dugar venjulega fiskamaturinn ?
by Bryndís
19 May 2013, 11:43
Forum: Gotfiskar
Topic: Seiði_lífslíkur
Replies: 12
Views: 24534

Seiði_lífslíkur

Góðan dag. Fyrstu seiðin okkar voru að fæðast. Þau eru í búri með gervigróðiri ( stór planta með fullt af laufum) sem þau virðast fela sig í og svo hanga þau á bakvið dæluna. Við eigum ekki seiðabúr. Er ekki betra að leyfa þeim bara að vera þarna heldur en að setja þau í sér skál/fötu með engum hita...
by Bryndís
20 Feb 2013, 22:07
Forum: Almennar umræður
Topic: Ancistra_hegðun
Replies: 4
Views: 6815

Re: Ancistra_hegðun

Takk kærlega fyrir þetta. Já, við verðum sennilega bara að venjast þessum tilfæringum hennar :-)
by Bryndís
19 Feb 2013, 21:53
Forum: Almennar umræður
Topic: Ancistra_hegðun
Replies: 4
Views: 6815

Re: Ancistra_hegðun

Já, við erum með lítinn "helli" sem hún var mikið inni í fyrst en núna grefur hún sig stundum hálfa á kaf blessunin .-)
by Bryndís
18 Feb 2013, 23:21
Forum: Almennar umræður
Topic: Ancistra_hegðun
Replies: 4
Views: 6815

Ancistra_hegðun

Hæ hæ og takk fyrir frábært spjall. Ég er með 54.L búr sem í búa 3 mollar, 1 sverðdragi, 8 neontetrur, 1 dvergfroskur og ein ancistra. Ancistran var nú frekar róleg fyrst eftir að við fengum hana en undanfarið er ansi mikill hamagangur í henni. Hún ryður mölinni til og frá, grefur holur og það er ný...
by Bryndís
10 Jan 2013, 17:56
Forum: Almennar umræður
Topic: Dvergfroskur og salt
Replies: 0
Views: 3124

Dvergfroskur og salt

Er einhver hér sem hefur reynslu af því að salta í fiskabúr sem inniheldur einnig dvergfrosk? Þolir froskurinn saltið?
by Bryndís
09 Jan 2013, 10:20
Forum: Almennar umræður
Topic: Blettaveiki.
Replies: 11
Views: 14368

Re: Blettaveiki.

Veit að þetta er gamall þráður en spyr samt. Ég er með einn dvergfrosk með fiskunum mínum, þola þeir saltið?
by Bryndís
31 Dec 2012, 15:45
Forum: Almennar umræður
Topic: Dvergfroskur_vill ekki nærast
Replies: 6
Views: 8221

Re: Dvergfroskur_vill ekki nærast

Froskurinn alsæll eftir að hafa fengið blóðormana, höfum aldrei séð hann svona mikið á ferðinni. Hann var reyndar smá tíma að þora í matinn og mjög varkár en við sáum hann borða og nú er hann allur hressari :-)
by Bryndís
30 Dec 2012, 16:50
Forum: Almennar umræður
Topic: Dvergfroskur_vill ekki nærast
Replies: 6
Views: 8221

Re: Dvergfroskur_vill ekki nærast

Takk fyrir þetta. Fer á morgun og næ mér í orma .-)

Hef líka lesið að þeir þurfi felustaði, við erum með stóra hauskúpu sem hann hangir inn í. Kannski of góður felustaður fyrir hann :-)
by Bryndís
30 Dec 2012, 14:59
Forum: Almennar umræður
Topic: Dvergfroskur_vill ekki nærast
Replies: 6
Views: 8221

Re: Dvergfroskur_vill ekki nærast

Nei okkur var ekki ráðlagt það. Kannski bara gleymst.... Við vorum að kaupa nokkrar tegundir af fiskum og spurðum mikið. Keyptum fiskana og froskinn í Dýraríkinu. Fengum fína þjónustu og þeir gáfu sér góðan tíma í að aðstoða okkur. Las einmitt um blóðormana, að það væri gott að gefa þá með öðru. Sá ...
by Bryndís
30 Dec 2012, 13:35
Forum: Almennar umræður
Topic: Dvergfroskur_vill ekki nærast
Replies: 6
Views: 8221

Dvergfroskur_vill ekki nærast

Er með nýtt búr, vikugamalt, með tveimur mollíum (par), einum karl-sverðdragara, fjórum neontetru og einum dvergfroski. Gengur vel með fiskana, þeir eru sprækir og skemmtilegir en við sjáum froskinn lítið nærast. Fyrstu dagana var hann duglegur að hreyfa sig um búrið en núna hefur hann ekkert sést í...
by Bryndís
27 Dec 2012, 00:15
Forum: Almennar umræður
Topic: Neon_Tetra í dælu....
Replies: 4
Views: 6642

Re: Neon_Tetra í dælu....

Takk kærlega fyrir svörin :-)
by Bryndís
26 Dec 2012, 16:44
Forum: Almennar umræður
Topic: Neon_Tetra í dælu....
Replies: 4
Views: 6642

Re: Neon_Tetra í dælu....

Það held ég, þetta er nánast ónotuð Eheim 2008 dæla. Eins og þessi http://www.eheimparts.co.uk/infilter.htm
Það eru ristar neðan á henni og svo túða uppi sem dælir út og hægt er að snúa og stjórna hversu mikið flæði er.